Fara í efni
Fréttir

12.000 manns hafa sótt LifeTrack appið

Vörurnar í LifeTrack appinu eru nú orðnar yfir 20.000 talsins, að stórum hluta fyrir tilstilli notenda sjálfra, sem geta skannað vörur inn í gagnagrunninn sé varan þar ekki nú þegar.

Þegar norðlenska heilsuappið LifeTrack leit dagsins ljós síðla árs 2024 voru stofnendur þess, hjónin Linda Rakel Jónsdóttir og Ingi Torfi Sverrisson, bjartsýn en jafnframt meðvituð um að þau væru að vaða út í óvissuna. Nú, næstum einu og hálfu ári síðar, hefur þróun appsins farið fram úr væntingum og LifeTrack fest sig í sessi sem raunhæft verkfæri fyrir almenning sem vill bæta heilsu sína.

Blaðamaður akureyri.net spjallaði við Inga Torfa og Lindu Rakel þegar appið fór í loftið á sínum tíma en ákvað að taka stöðuna á þeim aftur í tengslum við nýafstaðna kynningu á appinu í Drift EA þar sem gestir fengu m.a. að sjá hvernig LifeTrack appið virkar í framkvæmd.

„Appið er einfaldlega að virka, fólk er að ná árangri og það spyrst hratt út,“ segir Ingi Torfi en nú hafa um 12.000 manns sótt LifeTrack appið. Notendahópurinn er að sögn þeirra hjóna fjölbreyttur, allt frá einstaklingum sem vilja léttast eða byggja upp styrk, yfir í íþróttalið, vinnustaði og fyrirtæki sem eru farin að nýta lausnina markvisst.


Linda og Ingi Torfi hafa verið dugleg við að kynna LifeTrack appið. Þau voru t.d. nýlega með kynningu í Drift EA, til hægri. 

20 þúsund vörur komnar í gagnagrunninn

Einn stærsti áfangi síðustu mánaða er stórlega stækkaður gagnagrunnur. Þegar appið fór í loftið innihélt það um 7.000 matvörur sem hjónin höfðu sjálf að mestu skráð í gagnagrunninn. Nú eru vörurnar orðnar yfir 20.000 talsins, að stórum hluta fyrir tilstilli notenda sjálfra. „Ef vara er ekki til, þá skannar fólk hana einfaldlega inn. Þetta er orðið samfélagsverkefni og gagnagrunnurinn er orðinn mjög sterkur,“ segir Ingi Torfi. Jafnframt hafa þau hafið samstarf við heilbrigðisstarfsfólk, þar á meðal lækni sem vinnur að fræðsluefni fyrir LifeTrack, matseðlum og matarplönum. Að sögn Inga Torfa er markmiðið með þessu að tryggja faglegan grunn og samhljóm milli vísinda og þess sem appið kennir notendum. Þá hafa veitingastaðir í auknum mæli komið inn í appið og fengið vottun fyrir því að vera með næringarlega góða rétti.

Sóli Hólm er einn þeirra sem fallnir eru fyrir LifeTrack. Hér er skjáskot af Instagramreikningi LifeTrack en þar segir Sóli frá vegferð sinni en hann léttist um 10 kg á tveimur mánuðum. 

Vandinn oft magn í formi falinna hitaeininga

Linda og Ingi leggja mikla áherslu á hugtakið heilsulæsi. Að þeirra sögn tekur það yfirleitt aðeins nokkrar vikur fyrir fólk sem notar LifeTrack appið að öðlast nýjan skilning á næringu, skammtastærðum og eigin líkamsviðbrögðum. „Heilsulæsi og næringarlæsi eykst gríðarlega mikið með því bara að fikta í appinu í einn mánuð,“ segir Linda og Ingi Torfi bætir við: „Við erum ekki að banna fólki að borða ákveðna hluti heldur erum við að svara mikilvægustu spurningu dagsins: spurningin er ekki hvað á að vera í matinn, heldur hversu mikið á að vera í matinn. Það er þar sem raunverulegi munurinn liggur.“

Þau segja að margir notendur átti sig á því við notkun appsins að vandinn var ekki endilega hvað þeir borðuðu, heldur magnið, sem leynist oft í formi falinna hitaeininga í sósum, hnetum eða helgarvíni. Þegar „bókhaldið fer að stemma“, eins og þau orða það, fylgir árangurinn í kjölfarið.

Að sögn Lindu Rakelar og Inga Torfa eru notendur appsins venjulegt fólk sem er að leita að bættri heilsu, betri árangri og vill skilja betur samhengið á milli magns og næringar. 

„Venjulegt fólk“ stærsti notendahópurinn

Eftir rúmt ár í notkun eru árangurssögurnar orðnar margar og áhrifamiklar. Linda tekur sem dæmi konu á sextugsaldri á Hornafirði sem missti 19 kíló á fimm mánuðum með aðstoð appsins. Annar notandi léttist um 34 kíló á einu ári og fann sig allt í einu færan um að hlaupa, þrátt fyrir fyrri hnévandamál. „Þetta er fólk sem hafði enga persónulega aðstoð, bara appið. Og nú er það farið að draga vini og vandamenn með sér,“ segja þau. Á Instagram-reikningi LifeTrack má líka finna nokkur góð meðmæli frá þekktu fólki sem komið er á LifeTrack-vagninn. Til dæmis frá uppistandaranum Sóla Hólm sem er kolfallinn fyrir appinu en hann léttist um 10 kg á 2 mánuðum.

Þegar appið kom fyrst á markað nefna þau Linda og Ingi Torfi að umræðan hafi fyrst verið svolítið í þá átt hvort appið væri „íþrótta-app“, en segja að það sé ekki raunin, stærsti hópurinn sé almenningur. „Langstærsti notendahópurinn er „venjulegt fólk“, ekki afreksíþróttafólk, þrátt fyrir að slíkt fólk hafi einnig nýtt appið með góðum árangri. Þetta er venjulegt fólk sem er að leita að bættri heilsu, betri árangri og vill skilja betur samhengið á milli magns og næringar, segir Ingi Torfi.

„Við erum einfaldlega að kenna fólki að skilja eigin heilsu. Og þegar skilningurinn kemur, þá fylgir breytingin sjálfkrafa,“segja þau Linda og Ingi Torfi. 

Vilja sanna konseptið á Íslandi

Linda og Ingi vinna bæði í fullu starfi við LifeTrack. Fyrirtækið er enn lítið í sniðum, með tvö stöðugildi og meðeiganda í stjórn. Starfsemin flutti þó nýverið af heimili þeirra og yfir í skrifstofu við Glerárgötu sem þau segja að sé mikilvægt skref til að halda jafnvægi milli vinnu og einkalífs. En hvernig sjá þau framhaldið fyrir sér, eru þau á leið með appið á erlendan markað? „Við viljum fyrst sanna konseptið hér heima,“ segja þau. „Þetta er langhlaup og við viljum byggja þetta rétt upp.“ Eftir sex ára reynslu af heilsumarkaðnum áður en LifeTrack varð til, segja þau ákvörðunina um að koma appinu í loftið sannarlega hafa verið rétta. Þörfin var augljós og viðtökurnar staðfesta það. „Við erum einfaldlega að kenna fólki að skilja eigin heilsu. Og þegar skilningurinn kemur, þá fylgir breytingin sjálfkrafa,“ segja þau að lokum.