Fara í efni
Verslunarmannahelgin

Þessi leikur var aldrei að fara að enda öðruvísi

Hallgrímur Mar hleypur fagnandi að stuðningsmönnum KA, eftir að hann skoraði úr vítinu - en þeir voru flestir aftan marksins við hinn enda vallarins. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þetta var torsótt en endaði mjög vel,” sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA-maðurinn reyndi, við akureyri.net eftir að hann tryggði sínum mönnum sætan sigur á Þór, 1-0, í fimmtu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á nýja Þórsvellinum í dag.

Hann skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 86. mínútu en fram að því höfðu Þórsarar verið hættulegri í miklum baráttuleik frammi fyrir tæplega tvö þúsund áhorfendum. Þetta var fyrsta viðureign Akureyrarliðanna í efstu deild í 24 ár og því mikil spenna innan vallar sem utan frá upphafi til enda.

Þetta var mikil barátta, mikið flautað, og þessi leikur var aldrei að fara að enda öðruvísi en með einhverju svona, marki úr föstu leikatriði eða vítaspyrnu. Við fengum reyndar einhver færi, Þórsarar fengu sinn skerf af færum í fyrri hálfleik og við aðeins í þeim seinni, en þetta var alltaf að fara að verða 1-0 sigur á lokamínútunum með marki öðru hvoru megin. Sem betur fer datt það okkar megin í dag,” sagði Hallgrímur, sem sjálfur krækti í vítaspyrnuna á örlagastundu, skoraði, og fagnaði síðan markinu með miklum tilþrifum.

Vítaspyrnan var dæmt á Bjarni Guðjón Brynjólfsson á 86 mínútu. Myndir: Ármann Hinrik

Geggjað fyrir bæinn

Mikil stemning var á Þórsvellinum í dag þar sem um 1.500 Þórsarar og tæplega 500 KA-menn sköpuðu umgjörð sem er sjaldséð í íslenskum fótbolta.

Stuðningurinn hjá báðum liðum var geggjaður. Þórsararnir voru með „banter” á okkur og við sömuleiðis á þá. Þetta var alveg geðveikt. Það er geggjað fyrir bæinn að fá svona leik, og tvo á ári. Verst að þeir séu dottnir úr bikarnum, það hefði verið gaman að fá þá þar. En vonandi mætum við þeim ekki í lokaumferðunum, ég vona að við verðum í efri hlutanum og þeir í neðri,” sagði Hallgrímur og hló.

Var á verkjastillandi í allan dag

Hann hefur verið tæpur undanfarið vegna meiðsla, missti af tveimur leikjum sem er sjaldgæft þegar Húsvíkingurinn á í hlut, og kom inn á sem varamaður í þeim þriðja. En í dag harkaði hann af sér og lék allar 90 mínúturnar. Sem betur fer fyrir KA.

„Ég er að drepast í mjöðminni og hef verið á verkjastillandi í allan dag en svona leik sleppir maður ekki, berst frekar í gegnum hann, og þannig var þetta hjá öllum á vellinum í þessum leik. Þetta var gríðarlega barátta. Ég var fínn á móti Keflavík en var búinn að vera mjög slæmur í þessari viku, veit ekki af hverju. Bruddi verkjatöflur og vafði þetta til að gera það skárra. Í svona leik gleymir maður öllu þegar adrenalínið er á fullu. Ég vona bara að ég vakni ekki ónýtur í fyrramálið,” sagði Hallgrímur um ástandið á sér en hann er þekktur fyrir að missa ekki úr leiki árum saman.

Sigurmarkið! Hallgrímur Mar skoraði af miklu öryggi úr vítaspyrnunni, spyrnti knettinum í hægra hornið en Aron Birkir Stefánsson kastaði sér í hina áttina. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Skelfileg fyrsta snerting en klárt víti

Óhætt er að segja að Hallgrímur hafi verið allt í öllu í sigurmarkinu því hann krækti í vítaspyrnuna mikilvægu og skoraði svo úr henni sjálfur. Hann var felldur rétt utan markteigs Þórs eftir snögga sókn KA og sendingu Sveins Margeirs Haukssonar sem hafði komist inn fyrir vörnina hægra megin.

„Ég var með skelfilega fyrstu snertingu þegar Svenni sendi á mig og missti boltann aðeins frá mér. Svo kom Bjarni, held ég, og ég teygði mig í boltann. Hann hélt eflaust að hann væri með boltann, og tók bæði mig og boltann. Ég held að þetta hafi verið alveg klárt víti. Síðan fór ég bara á punktinn og setti hann.”

Haddi var eitthvað stressaður

Hallgrímur var augljóslega sjálfur tilbúinn strax til að taka vítaspyrnuna þó hann hefði verið felldur.

„Ég er vítaskytta liðsins, Haddi (Hallgrímur Jónasson þjálfari) var eitthvað stressaður yfir því að ég væri of meiddur til að taka hana, en ég gat ekki sleppt því að taka víti á lokamínútunum í svona leik.”

Sigurinn var langþráður og dýrmætur fyrir KA sem hafði aðeins fengið eitt stig í fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni.

Mynd: Skapti Hallgrímsson

„Já, þetta var mjög mikilvægur sigur. Hann gefur okkur jafnmörg stig og á móti öðrum liðum svo við þurfum að byggja ofan á þetta og halda áfram. Sýna sama hugarfarið og við sýndum í dag, enda þótt það hefði mátt vera allar 90 mínúturnar. Þú vinnur ekki fótboltaleiki ef þú nennir ekki að leggja inn vinnuna og við þurfum að halda því áfram allir sem einn.”

Vandræðalegur vídeófundur

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA lét sína menn heyra það rækilega í fjölmiðlum eftir tap KA gegn Keflavík á dögunum og nafni hans sagði það hafa verið verðskuldað.

„Ég held að menn hafi upplifað þetta mjög sterkt sjálfir. Við tókum vídeófund eftir leikinn og það var eiginlega vandræðalegt hvað hugarfarið var slæmt, eða tempóið í pressunni. Við litum inn á við, lögðum okkur aðeins meira fram í dag og uppskárum sigur. Ég er mjög ánægður með strákana í dag. Nú ætlum við að sækja þrjú stig gegn Eyjamönnum í næsta leik,” sagði Hallgrímur Mar Steingrímsson.