Ein með öllu – hvað er á dagskrá í dag?
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu nær hámarki í dag og í kvöld, „þarsem fjölskyldustemning, náttúruupplifun og stórkostlegir tónleikar fara saman,“ eins og segir í tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar. „Dagurinn býður upp á rólega samveru í Kjarnaskógi, líf og fjör í miðbænum og endar með glæsilegum Sparitónleikum á Akureyrarvelli áður en síðustu ballgestir dansa verslunarmannahelgina út. Skipuleggjendur hátíðarinnar minna á að nýta strætó og létta álagið á bílastæðum bæjarins. Aukaleiðir alla helgina, meðal annars úr miðbænum á milli kl 23-01.“
Hér fylgir yfirlit yfir dagskrána á hátíðinni og aðra viðburði í bænum.
DAGSKRÁIN Í DAG, SUNNUDAG
KJARNASKÓGUR
- Kl. 13:00-16:00 – Skógardagur Skógræktarfélags Eyfirðinga í boði Nettó
„Skógardagurinn er einn af vinsælustu fjölskylduviðburðum helgarinnar og gefur gestum tækifæri til að njóta einnar fallegustu útivistarperlu Akureyrar. Hér mætast náttúra, fræðsla og skemmtun fyrir alla fjölskylduna.“
Á dagskrá verður meðal annars:
- Á milli kl. 13 og 14. Svenni Þór og Regína Ósk syngja með krökkunum.
- Á milli kl. 13 og 15. Húlladúlla sýnir listir sínar.
- Á milli kl. 14 og 15. Blæja og Bára verða á svæðinu og taka myndir með gestum.
- Bogfimideild Akurs kynnir starfsemi sína og býður gestum að prófa bogfimi.
- Blæja og Bára verða á svæðinu og taka myndir með gestum.
- Ís í boði Ísbúðarinnar.
- Birkibandið spilar fyrir gesti og gangandi.
- Sveppafræðsla með Guðríði Gyðu.
- Popp og kaffi.
- Fornbílasýning Bílaklúbbs Akureyrar á Birkimel.
- Ávextir í boði Nettó.
Gestir eru hvattir til að klæða sig eftir veðri, taka með sér teppi og njóta notalegrar stundar í skóginum.
MIÐBÆRINN
- Kl. 13:00 – Markaðsstemning á Ráðhústorgi
„Síðasti markaðsdagur helgarinnar býður upp á fjölbreytt úrval vara, handverks og spennandi muna. Tilvalið að kíkja við áður en haldið er á næsta viðburð.“ - Verslanir, kaffihús, ísbúðir, veitingastaðir og barir taka vel á móti gestum. Miðbærinn verður áfram iðandi af lífi og sannkölluð hátíðarstemning ríkir á götum bæjarins.
- Kl. 15:00–21:00 – Dagvaktin
DJ Ayobe heldur áfram að skapa góða stemningu á útisvæðinu við Sjallann þar sem gestir geta notið tónlistar, dansað og slakað á undir berum himni. - Vamos & Fiesta – Opið kl. 11:30-03:30
Steinbakaðar pizzur, smáréttir, shuffleboard, píla og pool eru í boði allan daginn. Á útisvæðinu heldur Vamos Versló Fest áfram með plötusnúðum og tónlistarfólki sem sjá til þess að stemningin haldist í hámarki fram á nótt. Dansgólfið á efri hæð opnar kl. 23:00.
AKUREYRARVÖLLUR
- Kl. 13:00–23:30 – RISA tívolí
Síðasti dagurinn til að njóta tívolísins sem hefur glatt gesti alla helgina. Miðar fást á staðnum. - Kl. 15:00–23:00 – Hoppukastalaland
Yngstu gestirnir geta leikið sér í fjölbreyttum hoppukastölum áður en kvölddagskráin tekur við. - Matarvagnar og tónlist
Fjölbreyttir matarvagnar verða á svæðinu og lifandi tónlist ásamt plötusnúðum sér um að halda góðri stemningu yfir daginn.
SPARITÓNLEIKAR EINNAR MEÐ ÖLLU
Frítt inn í boði Egils Appelsín
- Tónleikasvæðið á Akureyrarvelli verður opnað kl. 18:00 og tónleikarnir hefjast kl. 19:00.
- „Verslunarmannahelginni lýkur með glæsilegum Sparitónleikum þar sem landslið íslensks tónlistarfólks kemur saman á svið. Kynnar kvöldsins eru hjónin Svenni Þór og Regína Ósk, sem leiða gesti í gegnum eina stærstu kvöldskemmtun helgarinnar,“ segir í tilkynningu frá skipuleggjendum.
Fram koma meðal annars:
- Aron Can
- Bríet
- Dynjandi
- Herra Hnetusmjör
- JóiPé og Króli
- Laddi og Hljómsveit mannanna
- Kristmundur Axel
- Páll Óskar
... ásamt fleiri háleynilegum gestum sem verða afhjúpaðir á sviðinu, eins og það er orðað.
„Gestir eru hvattir til að mæta tímanlega, fá sér góðan götubita frá matarvögnunum og njóta kvöldsins saman áður en glæsileg flugeldasýning markar lok hátíðarinnar sem er að venju í höndum björgunarsveitarinnar Súlur á Akureyri.“
BOGABALLIÐ Í BOGANUM
„Þegar Sparitónleikunum og flugeldasýningunni lýkur færist fjörið inn í Bogann þar sem síðasta ball verslunarmannahelgarinnar tekur við. Húsið opnar kl 00:00 og það er 20 ár aldurstakmark.“
Fram koma meðal annars:
- JóiPé og Króli
- Páll Óskar
- Bríet
- Herra Hnetusmjör
- og fleiri gestir.
Miðasala er í fullum gangi á Tix.is og einnig er hægt að kaupa helgarpassa.
SJALLINN
Síðasta kvöld helgarinnar í Sjallanum. 18 ára aldurstakmark. Húsið opnað kl. 23:00.
Fram koma:
- Herra Hnetusmjör
- Aron Can
- Kristmundur Axel
GLERÁRTORG
Verslanir og veitingastaðir taka vel á móti gestum síðasta dag hátíðarinnar.
Opið sem hér segir:
- Glerártorg: 12:00–17:00
- Nettó: 09:00–20:00
- Iðunn Mathöll: 11:30–21:00
- Heimilistæki: Lokað
- Skor: 16:00–23:00
- Verksmiðjan: 11:00–22:00
Nánari dagskrá má finna á heimasíðu Glerártorgs.
GRÆNI HATTURINN
- Kl. 21:00 – Ljótu Hálfvitarnir
Ljótu Hálfvitarnir ljúka sinni verslunarmannahelgi á Græna hattinum með enn einu kraftmiklu kvöldi. Miðasalan er í fullum gangi.
POP-UP markaður – Dalsbraut 1
- Kl. 12:00–16:00 Síðasta tækifærið til að heimsækja vinsæla POP-UP markaðinn þar sem íslenskir hönnuðir, smáframleiðendur og netverslanir bjóða upp á fjölbreytt úrval vara.
LISTSÝNINGAR
- Nánd – Mjólkurbúðinni. Myndlistarsýning Bjargar Eiríksdóttur sem stendur til 3. ágúst. Opið er kl. 14-17 alla daga. Björg vinnur með fjölbreytta miðla þar sem náttúran og samband manns og umhverfis eru í forgrunni.
- Hringrás lífsins – Sigríður Stefanía Stefánsdóttir sýnir í Deiglunni. Sýningin var opnuð í gær og stendur þar til á morgun. Opið kl. 12-18 í dag og á morgun, sunnudag
- Hédna – Menningarhúsinu Hofi. Sýning sextíu og eins félaga í Myndlistarfélaginu á Akureyri. Viðfangsefnin fjölbreytt þar sem tekist er á við tilveru í flóknum heimi með aðferðum myndlistar. Sýningin er opin til 16. ágúst.
- Sjálfsástarvírus - Minnisvarði #3 – Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir. Listasafnið á Akureyri. Útilistaverk á svölum safnsins.
- Zimoun – Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Saga Íslands: 2. hluti – Eiríkur Páll Sveinsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Guð launi þér – Úlfur Logason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 16. ágúst 2026.
- Hughrif - Litir - Form I – Valin verk fyrir sköpun og fræðslu. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 7. mars 2027.
- Sýning um heilagan fugl – Örlygur Kristfinnsson. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Andlegar verðmætavindur Magnúsar – Magnús Helgason. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- S-I-L-I-C-A-0-3 – Hulda Rós Guðnadóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Ný aðföng í safneign – Kristín Gunnlaugsdóttir. Listasafnið á Akureyri. Sýningin stendur til 6. september 2026.
- Brák Jónsdóttir. Flóra menningarhús, Sigurhæðum. Sýningin stendur til 10. október 2026.