Fara í efni
Þyrla Landhelgisgæslunnar á Akureyri

Þyrlumálið: Mikilvæg ákvörðun og stórt skref

TF-GRÓ vakti mikla athygli skólabarna sem fengu að skoða hana þegar þyrlan kom til Akureyrar í sumar í tilefni málþings um leit- og björgun á norðurslóðum og 100 ára afmælis Landhelgisgæslunnar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Berglind Ósk Guðmundsdóttir, bæjarstjóri á Akureyri, fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar í morgun að þyrlu verði bætt í flota Landhelgisgæslunnar og að hún verði staðsett á Akureyri.

„Ég vil byrja á því að votta aðstandendum þeirra sem fórust í þessu hörmulega slysi mínar innilegustu samúðarkveðjur,“ segir Berglind við akureyri.net og vísar til þess er fiskiskipið Jökull ÞH sökk fyrir austan land í fyrradag. Þrír úr áhöfninni létust en 14 var bjargað. „Jafnframt vil ég þakka þeim sem komu að björguninni og unnu þar mikið þrekvirki við afar erfiðar aðstæður.“

Berglind Ósk segir mikilvægt að tekin hafi verið ákvörðun um að þyrlu verði bætt í flota Landhelgisgæslunnar. „Ákvörðunin er stórt skref í þágu aukins öryggis og bættrar viðbragðsgetu. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að þessi mikilvæga uppbygging verði að veruleika eins hratt og örugglega og kostur er.“