Fara í efni
Þyrla Landhelgisgæslunnar á Akureyri

Ákveðið að bæta við þyrlu á Akureyri

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Ákveðið var á fundi ríkisstjórnar Íslands í morgun að hefja vinnu við að bæta fjórðu þyrlunni í flota Landhelgisgæslunnar og að hún verði staðsett á Akureyri. Ekki hefur verið ákveðið hvort þyrla verður keypt eða leigð. Fram hefur komið að það gæti tekið eitt til þrjú ár að taka þyrlu á leigu en dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, sagði að loknum fundi ríkisstjórnarinnar að reynt yrði að flýta því eins og mögulegt væri að fá þyrluna til landsins.

„Við höfum verið með þessi mál í skoðun allt síðasta ár og það stóð til að klára fjórðu þyrluna á þessu kjörtímabili. Við höfum tekið ákvörðun um að flýta því, það er að segja að fara strax á næsta ári í einskiptiskostnað sem snýr að uppbyggingu á aðstöðu á Akureyri,“ sagði Kristrún Frostadóttir í hádegisfréttum Bylgjunnar. 

Nánar á eftir