Þór
Þrír handboltaleikir á dagskrá í dag
16.08.2025 kl. 06:00

KB sendibílamótinu í handbolta, æfingamóti sem hófst í KA-heimilinu á fimmtudag, lýkur í dag. Tveir leikir kvennaliða eru á dagskrá og leikur KA og Þórs í karlaflokki.
KA vann Þór í karlaflokki á fimmtudaginn, 29:23, og KA/Þór vann Gróttu 32:24 í kvennaflokki.
Í gærkvöldi voru tveir leikir í kvennakeppninni: ÍBV vann KA/Þór með 10 marka mun, 28:18, og Grótta vann Stjörnuna 28:25.
Lokasprettur mótsins í KA-heimilinu hefst klukkan 11.00 í dag. Leikirnir eru þessir, fyrst kvennaleikirnir tveir og loks leikur karlaliðanna:
- 11:00 – Grótta - ÍBV
- 13:00 – KA/Þór - Stjarnan
- 15:00 – KA - Þór