Fara í efni
Þór

KA sækir FH heim í Olísdeild karla í kvöld

Mynd: Ármann Hinrik

Handboltalið KA í Olísdeild karla á fyrir höndum verðug verkefni í vikunni þar sem liðið mætir báðum Hafnarfjarðarliðunum með örfárra daga millibili. KA sækir FH heim í Kaplakrika í kvöld.

KA er í þriðja sæti deildarinnar með tíu stig að loknum sjö leikjum, en FH er sæti ofar með 11 stig. KA vann Aftureldingu á heimavelli í síðustu umferð með fjögurra marka mun, 32-28, en FH sigraði HK á útivelli, einnig með fjögurra marka mun, 33-29. 

  • Handbolti
    Olísdeild karla, 8. umferð
    Kaplakriki í Hafnarfirði kl. 18:30
    FH - KA