Fara í efni
Þór

Þórsarar töpuðu fyrir Vestra í hörkuleik

Framherjinn ungi Sverrir Páll Ingason fékk besta færi Þórs í gær og einnig virtist brotið á Sverri þegar hann var að sleppa inn fyrir vörn Vestra snemma í seinni hálfleik en ekkert var dæmt. Rafa Victor, á innfelldu myndinni, kom við sögu í gær í fyrsta skipti í sumar. Myndir: Ármann Hinrik og Skapti Hallgrímsson

Þórsarar lutu í lægra haldi fyrir Vestra á Ísafirði í gær í átta liða úrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu. Vestri vann 2:0 og fer þar með í undanúrslit keppninnar en Þórsarar eru úr leik. Vestri er sem kunnugt er eitt öflugasta lið Bestu deildarinnar en Þór leikur í Lengjudeildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins.

Meiðsli hrjá marga leikmenn Þórs um þessar mundir og ekki bætti úr skák að tveir lykilmanna Þórsliðsins voru í banni í gær; miðjumennirnir Ibrahima Balde og Aron Ingi Magnússon.

Vegna fjarveru leikmanna var „leynigestur“ í byrjunarliðinu gegn Vestra í gær; framherjinn Alexander Már Þorláksson, sem lék með Þór í þrjú ár en lagði skóna á hilluna í fyrrahaust. Alexander lék í klukkutíma og stóð sig vel. Meðal þeirra sem hafa glímt við meiðsli er framherjinn Rafael Victor, markahæsti leikmaður Þórs í fyrra, en hann kom við sögu í gær í fyrsta skipti í sumar – kom inná þegar rúmar 10 mínútur voru eftir. Afar gleðileg tíðindi það og mikilvæg fyrir Þórsara. 

Fyrri hálfleikur í gær var tíðindalítill að mati hins hefðbundna áhorfanda en án efa vel heppnaður frá sjónarhjóli þjálfarateymis Þórs. Markmiðið var að halda sterkum andstæðingi í skefjum sem lengst og það tókst allt þar til hálftími var liðinn. Gustav Kjeldsen braut þá ísinn með marki eftir hornspyrnu; varnarmaður gleymdi sér eitt augnablik og Eiður Aron Sigurbjörnsson fékk næði til að skalla boltann til Kjeldsens. Aðeins fimm mínútum síðar komst Vestri í 2:0. Gunnar Jónas Hauksson fékk langa sendingu fram hægri kantinn frá téðum Eiði Aroni, sendi  boltann fyrir markið á Vladimir Tufegdzic sem skoraði.

Vestramenn eru þekktir fyrir gríðarlega góðan varnarleik. Í Bestu deildinni í sumar hafa þeir gjarnan skellt í lás, ef svo má segja, ef þeir komast yfir í leikjum og því var ljóst að erfitt verkefni biði Þórsara í seinni hálfleik. Þeir komu hins vegar skemmtilega á óvart, eftir að hafa haldið sig aftarlega á vellinum fyrri hluta leiksins voru Þórsarar mun meira með boltann en heimamenn í seinni hálfleiknum, sóttu af djörfung og krafti – enda ekki um annað að ræða í bikarleik að taka áhættu í stöðunni.

Vert er að geta þess að Ásbjörn Líndal Arnarsson, sem er nýorðinn 17 ára, var í byrjunarliði Þórs í fyrsta skipti í sumar og stóð sig feykivel í vörninni. Sverrir Páll Ingason, jafnaldri Ásbjörns, var í byrjunarliðinu í annað skipti á leiktíðinni og kom við sögu í tveimur af eftirminnilegustu augnablikum leiksins: í upphafi seinni hálfleiks var hann við það að sleppa í gegnum vörn Vestra þegar Eiður Aron, aftasti varnarmaður, virtist rífa í hann en Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dómari sá ekki ástæðu til að aðhafast neitt nema hvað hann sýndi Sverri Páli gult spjald fyrir mótmæli. Eiður Aron slapp þar með skrekkinn. Sverrir Páll fékk svo besta færi Þórs á 70. mín – dauðafæri en Schubert markvörður sá við honum.

Þótt Þórsurum tækist ekki að skora í gær lofaði frammistaðan góðu. Árangurinn á Íslandsmótinu hefur verið undir væntingum en fróðlegt verður að sjá hvort Þórsliðið nær að fylgja góðri frammistöðu á Ísafirði eftir á sunnudaginn. Þá taka þeir á móti Selfyssingum í Lengjudeildinni.

Leikskýrslan