Fara í efni
Þór

KA í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur

Stórgóður leikur KA en sporin af velli voru þung. Hallgrímur Mar Steingrímsson fagnar eftir að hann kom KA í 3:1. Til hægri eru hann og Eiður Smári Guðjohnseon þjálfari eftir að flautað var til leiksloka. Myndir: Sævar Geir Sigurjónsson

Þrátt fyrir öruggan 5:1 heimasigur á ÍBV í lokaumferð neðri hluta efstu deildar karla í knattspyrnu verður það hlutskipti KA að falla niður í Lengjudeildina, eftir samfellda veru í efstu deild í áratug. Ljóst var fyrir þessa lokaumferð að annað hvort Akureyrarliðanna myndi falla en hitt halda sæti sínu. KA var í fallsæti þegar umferð dagsins hófst, einu stigi á eftir nágrönnum sínum í Þór, og þurfti að treysta á hagstæð úrslit í viðureign Þórs gegn FH syðra. Þeim leik lauk með 2:1 sigri Þórs, þeir enduðu því tímabilið með 30 stig og leika áfram í efstu deild, en uppskera KA varð 29 stig í 11. og næstneðsta sæti deildarinnar.

Jakob Snær Árnason kemur KA í 1:0 strax á 3. mínútu leiksins eftir sendingu frá Guðjóni Erni Hrafnkelssyni af hægri kanti. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Það var rafmögnuð stemmning í stúkunni á KA-vellinum þegar flautað var til leiks í dag og þétt setið í henni. Enda gríðarlega mikið í húfi og stuðningsmenn liðsins hvöttu sína menn ákaft. Örlögin voru vissulega ekki í höndum KA-manna sjálfra en þeir þurftu samt sem áður að klára sitt verkefni, til að halda möguleikanum lifandi.

Draumabyrjun KA

Og það byrjaði vel. Jakob Snær Árnason, fyrrverandi Þórsari, kom KA í 1:0 strax á 3. mínútu leiksins. Adam Ægir Pálsson bar upp snögga sókn KA og kom boltanum út á Guðjón Erni Hrafnkelsson á hægri kanti, sem sendi boltann fyrir markið. Þar reis Jakob Snær hæst og skallaði boltann í netið af markteig.

Þar með voru KA-menn komnir upp fyrir Þór í töflunni og örfáum mínútum síðar vænkaðist hagur KA enn frekar, þegar FH komst yfir gegn Þór. Mikil fagnaðarlæti brutust út í stúkunni og ljóst að miðað við þá stöðu sem upp var komin þyrftu Þórsarar að skora í það minnsta tvisvar.

Frábær stemning var á meðal áhorfenda á Greifavelli KA framan af leik enda voru þeirra menn í meðbyr á meðan á móti blés hjá Þórsurum. Stemningin var reyndar mjög góð lengst af en dofnaði verulega undir lokin þegar stefndi í að KA félli úr deildinni. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

En skjótt skipast veður í lofti. Eyjamenn jöfnuðu metin á 17. mínútu þegar Heiðmar Þór Magnússon skoraði með skalla eftir hornspyrnu og á sömu mínútu jafnaði Þorri Ingólfsson metin fyrir Þór gegn FH syðra. Nú var jafnt í báðum leikjum – sem þýddi að Þór var stigi ofar en KA í töflunni og KA í fallsæti.

Þór komst yfir – og KA líka

Þorri Þórsari sneri svo hnífnum í sári KA-manna tveimur mínútum síðar þegar hann kom Þór í 2:1 gegn FH og útlitið orðið svart á Brekkunni. KA-menn virtust ögn slegnir út af laginu og virtust ekki líklegir til að þjarma að Eyjamönnum. Það breyttist hins vegar á 38. mínútu þegar Mikael Breki Þórðarson skoraði af harðfylgi eftir að Adam Ægir laumaði knettinum til hans inn í vítateig á hárréttu augnabliki, svo ekki var um rangstöðu að ræða. Eftir þetta mark náði KA öllum tökum á leiknum og hélt þeim til leiksloka.

Hallgrímur Mar Steingrímsson fagnar eftir að hann kom KA í 3:1 á lokasekúndum fyrri hálfleiks. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Adam Ægir átti svo einnig þátt í þriðja marki KA, sem kom á síðustu mínútu uppbótartíma fyrri hálfleiks. Hann fékk boltann á miðjum vellinum, lék áfram inn á vallarhelming Eyjamanna og lagði knöttinn síðan út til hægri á Jakob Snæ. Jakob sendi boltann inn í vítateig, þar sem Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði með viðstöðulausu skoti. 3:1 fyrir KA í leikhléi – en þar sem Þór var enn 2:1 yfir var KA enn í fallsæti.

KA með öll tök á leiknum eftir hlé

Seinni hálfleikur var algjörlega eign KA-manna og Eyjamenn voru hreinlega arfaslakir. Neðsta sætið í deildinni var þeirra, þeir höfðu því ekki að miklu að keppa og það verður að segjast eins og er að sumir leikmanna liðsins virtust hafa lítinn áhuga á leggja sig fram. Það verður þó ekki tekið af leikmönnum KA að þeir héldu fullri einbeitingu og baráttu, staðráðnir í að ljúka verkefninu með sóma. Hallgrímur Mar kom þeim í 4:1 á 56. mínútu eftir undirbúning frá Jakobi Snæ. Hallgrímur lagði boltann snyrtilega fyrir sig á markteig og lagði hann síðan laglega í netið. Hans 13. mark í sumar.

Hallgrímur Mar skorar annað mark sitt í leiknum og fjórða mark KA. Þessi lang leikja- og markahæsti maður í sögu KA gerði þar með 13 mörk í Bestu deildinni í sumar. Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Adam Ægir Pálsson kórónaði góðan leik sinn á 71. mínútu þegar hann fékk boltann utan vítateigs, sneri af sér varnarmenn og setti boltann með hárnákvæmu skoti neðst í bláhornið. Staðan orðin 5:1 og Guðjón Ernir Hrafnkelsson hefði einnig getað kórónað góðan leik sinn með marki nokkrum mínútum síðar en skot hans hafnaði í þverslánni.

Jarðarfararstemmning í stúkunni

Stemmningin á vellinum þessar síðustu 20 mínútur leiksins var hins vegar þrúgandi.  Ljóst var að KA myndi vinna stórsigur en á meðan Þór var ennþá yfir gegn FH syðra var KA ennþá kyrfilega í fallsæti. Stuðningsmenn sátu hljóðir og biðu þess sem verða vildi. Eflaust hefur þeim fundist tíminn líða allt of fljótt á meðan beðið var eftir að kraftaverk gerðist í hinum leiknum. Mínúturnar liðu hver af annarri, staðan breyttist ekkert. Loks var flautað til leiksloka, KA gerði sitt og vann stórsigur en allt kom fyrir ekki. Sigur Þórs gegn FH hélt þeim fyrir ofan KA og hélt þeim uppi í efstu deild á meðan það verður hlutskipti KA að leika í næstefstu deild, Lengjudeildinni, að ári.

Adam Ægir Pálsson lék mjög vel í dag. Hann skoraði eitt mark og átti þátt í þremur öðrum.  Mynd: Sævar Geir Sigurjónsson

Sannkallaður martraðarendir á tímabilinu fyrir KA-menn, sem stefndu hátt í ár eftir að hafa endað í 7. sæti í deildinni nokkur undanfarin ár. Einhvern neista hefur vantað í liðið í sumar og þrátt fyrir góðan endasprett er 11. sætið hlutskipti liðsins að þessu sinni. Vissulega hefur það sett stórt strik í reikninginn að mikil meiðslavandræði hafa hrjáð leikmannahópinn og ýmsir leikmenn sem fengnir voru til liðsins og ætlað stórt hlutverk stóðu ekki undir því. Það jákvæða er að margir ungir leikmenn fengu tækifæri í sumar og nýttu það vel. Markús Máni Pétursson hefur til að mynda staðið vaktina í vörninni í allt sumar eins og þaulreyndur efstudeildarleikmaður og Mikael Breki Þórðarson vann sér fast sæti í liðinu seinnihluta tímabilsins, eftir að hafa náð sér af meiðslum, og stóð sig gríðarlega vel. Allir leikmenn liðsins léku vel í dag og kláruðu verkefni dagsins eins vel og fagmannlega og hægt var að ætlast til.

KA-menn voru vitaskuld gríðarlega vonsviknir þrátt fyrir góðan leik og stóran sigur, þegar fyrir lá að Þór vann FH syðra og þeir voru þar fallnir úr Bestu deildinni eftir 10 ára veru. Myndir: Sævar Geir Sigurjónsson

Verða breytingar hjá KA?

En fall hlýtur alltaf að þýða naflaskoðun og ljóst að á næstu vikum og mánuðum þarf knattspyrnudeild KA að horfast í augu við nýjan veruleika og marka framtíðarstefnu upp á nýtt. Eitt meginverkefnið verður eflaust að ákveða hvaða breytingar þarf að gera á þjálfarateymi og leikmannahópi liðsins. Hvort þær breytingar verða miklar eða litlar á eftir að koma í ljós en líklegt má telja að stuðningsmenn liðsins geri kröfu um að liðið fari beint upp í efstu deildina aftur.

Lið KA: Steinþór Már Auðunsson - Guðjón Ernir Hrafnkelsson, Hans Viktor Guðmundsson, André Römer, Markús Máni Pétursson, Birgir Baldvinsson (Snorri Kristinsson 8. (Kári Gautason 46.)) - Jakob Snær Árnason, Jeppe Pedersen (Valdimar Logi Sævarsson 70.), Mikael Breki Þórðarson (Hrannar Björn Steingrímsson 70.), Hallgrímur Mar Steingrímsson - Adam Ægir Pálsson (Danijel Dejan Djuric 74.).

Leikskýrslan á vef KSÍ

Lokastaðan í úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar