Fara í efni
Þór

Þórsarar rótburstuðu Fjölnismenn á útivelli

Ibrahima Balde gerði þrjú mörk fyrir Þór gegn Fjölni í kvöld. Mynd: Ármann Hinrik

Þórsarar gjörsigruðu lið Fjölnis, 5:0, á útivelli í kvöld í 10. umferð Lengjudeildarinnar, næst efstu deildar Íslandsmótsins í knattspyrnu. Þórsliðið er í fjórða sæti deildarinnar með 17 stig, HK hefur 18, Njarðvík 20 og ÍR er á toppnum með 22 stig.

Þór hafði mikla yfirburði í Grafarvoginum og sigurinn var síst of stór.

Ibrahima Balde, miðjumaðurinn firnasterki, gerði þrennu; skoraði fyrst eftir aðeins sex mínútur. Aron Ingi Magnússon, sem lék mjög vel eins og áður í sumar, tók hornspyrnu yfir að markteigshorninu fjær og varnarjaxlinn Yann Affi skallaði boltann til Balde hinum megin í markteignum. „Stóri maðurinn“ Balde hafði nægan tíma til að taka boltann niður og sendi hann síðan í netið, inn með nærstönginni.

Hermann Helgi Rúnarsson, lengst til vinstri, gerði annað mark sitt í sumar, og annað markið fyrir Þór í 96 deildarleikjum – Rafael Victor kom við sögu í annað skipti í sumar - Vilhelm Ottó Biering Ottóssyni var ekki hlátur í huga í gær. Hann meiddist eftir fáránlega tæklingu eins Fjölnismannsins. Myndir: Ármann Hinrik og Skapti Hallgrímsson

Framherjinn Rafael Victor, sem kom við sögu í annað skipti í sumar, fékk dauðafæri eftir tæpan hálftíma en náði ekki að skora. Hann  hefur verið lengi frá vegna meiðsla og á eftir að fínstilla miðið; þetta var aðeins í annað skipti sem Rafa kemur við sögu í sumar. Hann lék fyrri hálfleikinn gegn Selfossi á dögunum, var aftur í byrjunarliðinu að þessu sinni og lék í tæpan klukkutíma. Hann var markahæsti Þórsarinn í fyrramaður og mjög mikilvægt er að hann sé komin á kreik á ný.

Balde kom Þór í 2:0 á 42. mínútu. Eftir hornspyrnu Ýmis Geirssonar barst boltinn út fyrir vítateig, Ýmir fékk hann aftur og sendi inn að markteig, varnarmaður hitti ekki boltann sem hrökk til Balde og hann þakkaði kærlega fyrir sig með því að skora auðveldlega.

Staðan var 2:0 í hálfleik og úrslitin í raun ráðin.

Orri Sigurjónsson, Ibrahima Balde og Aron Ingi Magnússon voru öflugt tríó á miðjunni. Myndir: Ármann Hinrik

Ekki batnaði staða heimamanna á 62. mínútu þegar markvörðurinn Snorri Þór Stefánsson var rekinn út af fyrir að fella Balde sem kominn var einn inn fyrir vörnina. Sigurjón Daði Harðarson kom í markið í staðinn og byrjaði ekki vel: Aron Ingi Magnússon tók aukaspyrnu við vítateigslínuna, skotið fór beint á markmanninn sem snerti þarna boltann í fyrsta sinn í leiknum en hélt honum ekki og Hermann Helgi Rúnarsson sem kom aðvífandi gat varla annað en skorað.

Balde kom Þór í 4:0 á 78. mín. af stuttu færi eftir laglega sókn Þórs og góða sendingu Arons Inga. Þeir hafa náð vel saman og Balde endurgalt greiðann skömmu fyrir leikslok þegar hann sendi boltann á Aron Inga sem gerði fimmta markið.

Sigur Þórsara var afar sannfærandi. Þeir voru miklu betri en Fjölnismenn, sem sigu niður í neðsta sætið eftir leiki kvöldsins. Þórsarar létu það ekki á sig fá þótt gestgjafarnir tækju harkalega á móti þeim en það skyggði á ánægjulegt kvöld að vinstri bakvörður Þórs, Vilhelm Ottó Biering Ottósson, fór meiddur af velli þegar aðeins rúmlega 15 mínútur voru liðnar, eftir glórulausa tæklingu Óskars Dags Jónassonar út við hliðarlínu, langt úti á velli. Óttast er að Vilhelm sé illa meiddur, hann var í það minnsta mjög kvalinn. Fjölnismenn hefðu ekki getað kvartað þótt rauða spjaldið hefði einnig farið á loft þá.

  • Tíðindamaður fótbolta.net ræddi við Ibrahime Balde eftir leikinn. Í skemmtilegu viðtali segist Balde halda að síðast hafi hann gert þrjú mörk í leik 16 ára gamall! Smellið hér til að sjá viðtalið.

Leikskýrslan

Staðan í deildinni