Þórsarar leika í Gedda treyjunni gegn KR
Þórsarar klæðast Gedda-treyjunni, sem svo er kölluð, þegar þeir taka á móti KR-ingum í dag í Bestu deildinni í knattspyrnu. Treyjan var hönnuð og seld til styrktar Gesti Arasyni og fjölskyldu hans, eftir að Gestur greindist með bráðahvítblæði í vor.
Aðal keppnistreyja Þórsara er hvít, fjölublá treyja hefur verið hluti varabúnings knattspyrnuliðs félagsins síðustu misseri en hönnuð var sérstök rauð treyja, merkt FYRIR GEDDA, og seld til styrktar fjölskyldunni.
Fimmmenningarnir á myndinni, tveir leikmanna Þórsliðsins og börn Gests og Erlu Bryndísar Jóhannsdóttur, hittust í morgun og mátuðu nýju treyjurnar. Þau eru, frá vinstri, Aron Birkir Stefánsson, markvörður og fyrirliði Þórs, Viktor Ari, Emílía Mist, Kristófer Örn og Sigfús Fannar Gunnarsson.
Þórsarar seldu alls um 900 Gedda-treyjur, söfnuðu þannig sex milljónum króna og sú upphæð var afhent Gesti og Bryndísi Erlu Jóhannsdóttur, eiginkona hans, við Landspítalann í Reykjavík í gær.
- Frétt akureyri.net fyrr í dag:
Færðu Gestu og Erlu sex milljónir króna
Vert er að geta þess, fyrir þá sem vilja leggja fjölskyldunni lið, að Þórsarar hafa stofnað styrktarreikning fyrir Gest og fjölskyldu.
- Íþróttafélagið Þór
- Kennitala 710269-2469
- Reikningsnúmer 0566-26-001101