Þór
Kvennalið Akureyrar áberandi í dag
21.11.2026 kl. 06:00
Fimm leikir eru á dagskrá Akureyrarliða í dag, tveir útileikir í blaki, heimaleikur KA/Þórs í handbolta, heimaleikur hjá íshokkíkonum í SA og körfuboltakonum í Þór.
- Blak – Blaklið KA í efstu deildum karla og kvenna, Unbroken-deildunum, fara bæði í Mosfellsbæinn í dag og mæta Aftureldingu. Karlaliðin spila á undan, en þar er KA í 5. sæti deildarinnar með átta stig og Afturelding í 6. sætinu með fjögur stig. Bæði liðin nokkuð frá toppbaráttunni í stigum talið, enn sem komið er. Kvennalið sömu félaga mætast einnig, og þar er KA einnig sæti ofar en Afturelding. KA er í 2. sæti Unbroken-deildar kvenna með 13 stig og Afturelding í 3. sætinu með 11 stig.
- Handbolti – Vikan verður annasöm hjá handboltakonunum í KA/Þór því þær fá stutta hvíld eftir bikarleikinn við Fjölni á miðvikudag. Strax í dag er komið að leik í Íslandsmótinu. Eyjakonur í ÍBV koma norður og mæta KA/Þór í 10. umferð Olísdeildarinnar. Eyjakonur geta verið erfiðar við að eiga, eins og þær sýndu á dögunum þegar þær voru fyrstar til að hirða stig af toppliði Hauka með 31-31 jafntefli í Hafnarfirði. ÍBV er í 2. sæti deildarinnar með 15 stig úr fyrstu níu leikjunum, en KA/Þór er í 7. sætinu með fjögur stig. Bæði lið spiluðu í fyrstu umferð bikarkeppninnar á miðvikudag.
- Íshokkí – Hokkíkonurnar í Skautafélagi Akureyrar hafa byrjað keppnistímabilið af krafti og eru efstar í Toppdeildinni með 13 stig úr fyrstu fimm leikjum sínum. Reykjavíkurfélögin eru bæði með fjögur stig, Fjölnir úr fjórum leikjum og SR úr fimm. SA hefur unnið fjóra leiki og tapað einum eftir framlengingu og vítakeppni. Það var gegn SR, en þessi lið mætast einmitt í Skautahöllinni á Akureyri í dag.
- Körfubolti – Seinni leikur kvennaliðs Þórs í körfubolta í þessari viku er á dagskránni í dag þegar Selfyssingar koma í heimsókn. Þar má búast við jöfnum og spennandi leik. Þessi lið eru í 2. og 3. sæti deildarinnar, bæði með fimm sigra í sex leikjum. Þór úr Þorlákshöfn er í toppsætinu með sex sigra í sjö leikjum, eina liðið sem hefur sigrað Þór frá Akureyri og Selfoss er eina liðið sem hefur sigrað Þór úr Þorlákshöfn, og í báðum tilvikum munaði aðeins tveimur stigum.
- Blak
Unbroken-deild karla
Íþróttahúsið að Varmá kl. 13:30
Afturelding - KA
- Blak
Unbroken-deild kvenna
Íþróttahúsið að Varmá kl. 15:30
Afturelding - KA
- Handbolti
Olísdeild kvenna, 10. umferð
KA-heimilið kl. 15:30
KA/Þór - ÍBV
- Íshokkí
Toppdeild kvenna
Skautahöllin á Akureyri kl. 16:45
SA - SR
- Körfubolti
Bæjarins beztu deild kvenna, 8. umferð
Íþróttahöllin á Akureyri kl. 18:00
Þór - Selfoss