Fara í efni
Þór

„Þetta byggir allt á vinnuframlaginu“

SA Víkingar fagna Íslandsmeistaratitlinum í apríl 2025, þeim eina sem liðið hefur unnið á síðastliðnum fjórum árum, sem er undir væntingum Akureyringa enda góðu vanir í gegnum tíðina. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

Einn Íslandsmeistaratitill meistaraflokks karla á síðustu fjórum árum er ekki það sem íshokkísamfélagið á Akureyri hefur átt að venjast í gegnum tíðina. Stefnan er þó að sjálfsögðu alltaf á að vinna þá titla sem eru í boði hverju sinni, það breytist ekkert þó keppinautarnir hafi gert sig meira gildandi á undanförnum árum. 

Andri Már Mikaelsson var fyrirliði SA Víkinga síðast þegar þeir unnu Íslandsmeistaratitilinn í apríl 2025. Andri Már verður ekki með liðinu núna í upphafi móts, er í hléi vegna meiðsla. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

SA Víkingar, karlalið SA, hefur leik með heimsókn í Grafarvoginn í dag, þar sem þeir mæta liði Fjölnis. Allnokkrar breytingar hafa orðið á liði SA frá síðasta tímabili, tveir erlendir leikmenn farnir aftur til síns heima og þrír heimamenn, Bjarmi Kristjánsson, Ólafur Baldvin Björgvinsson og Uni Steinn Sigurðarson Blöndal, hafa haldið á vit nýrra ævintýra erlendis.

Býr mikið í liðinu

Nýr þjálfari er tekinn við liðinu, eins og fram kom í upphitun okkar fyrir fyrsta leik kvennaliðsins. Emil Alengård þjáflar bæði meistaraflokksliðin og U18 lið félagsins. 

Emil Alengård, nýr þjálfari meistaraflokksliða og U18 liðs SA. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Emil segir mikla möguleika búa í liði SA Víkinga, liði sem hefur komist í úrslitaviðureignirnar, en ekki náð að landa titlinum tvö síðustu ár. Þar hafi vantað upp á að ná að klára verkefnið. Liðið er hins vegar með góða lykilleikmenn að hans mati og hans hlutverk sé að styðja þá til að spila enn betur og stíga upp þegar það skiptir mestu máli. „Það er alvöru séns, en við þurfum góða stemningu og góðan anda til að halda út,“ segir Emil um væntingar til karlaliðsins. Upphaf tímabilsins gefi mönnum smá innspýtingu með nýjum þjálfara, nýjum leikmönnum, fljótlega komi síðan rútína á hlutina, en það kosti mikinn sjálfsaga að halda út í gegnum tímabilið. „Við getum enn þróað okkur og orðið betra lið,“ segir Emil. 

Ákafi og pressa

Spurður um leikstíl segir Emil að alltaf verði að horfa á hvaða hóp þjálfarinn hefur. En hann nefnir sérstaklega einkenni á liðum SA í gegnum árin, að þegar liðið er ekki með pökkinn vill það spila af ákafa, pressa og vinna hann hratt til baka. „Við erum ekki lið sem bara horfir og bíður, við viljum vinna saman í pressu og berjast fyrir því að vinna pökkinn til baka. Þegar við erum með pökkinn viljum við stjórna leiknum, eins og eðlilegt er þegar lið hefur pökkinn,“ segir Emil.

Gunnar Aðalgeir Arason er komin aftur heim í raðir SA eftir dvöl og spilamennsku í Hollandi í fyrra. Hér er hann í þriðja leik úrslitaeinvígisins gegn SR í apríl 2025, þegar SA vann einvígið 3-0. Mynd: Rakel Hinriksdóttir.

„Ég vil líka byggja upp meira af kerfum þegar við erum með pökkinn, hvernig við getum spilað sóknina saman, allir koma við sögu, ekki bara þrír sóknarmenn. Alveg eins í vörninni, allir vinna saman. Þetta byggir allt á vinnuframlaginu, það er númer eitt. Það er eitthvað sem ég set á alla leikmenn, framlagið verður að vera til staðar. Ég get ekki byrjað að vinna í smáatriðunum ef vinnan á bakvið er ekki til staðar.“

Fjögurra liða reglan og U20

Til þess að Ísland fái þátttökurétt í Heimsmeistaramótum er Toppdeild karla og Íshokkísambandið undir það sett samkvæmt reglum Alþjóða íshokkísambandsins, IIHF, að í deildinni spili að lágmarki fjögur lið. Á undanförnum árum hefur stundum þurft hugmyndaauðgi til að uppfylla það formsatriði.

Núna eru þrjú raunveruleg félagslið í deildinni, SA, SR og Fjölnir. Fjórða liðið sem tekur þátt í vetur er skipað landsliðsmönnum U20. Þátttaka þess hefur þó raunar tvíþættan tilgang, því auk þess að uppfylla skilyrði IIHF um fjögurra liða deild gefst U20 landsliðinu tækifæri á að spila meira saman en verið hefur áður en liðið heldur í landsliðsverkefni í janúar.

SA á nóg af ungum hokkíleikmönnum og margir þeirra munu spila leiki með U20 landsliðinu í Toppdeildinni í vetur. Hér er lið Jötna, U22 liðs SA, eftir að liðið vann Íslandsmeistaratitil U22 í vor.

Þjálfarar U20 landsliðsins geta því valið leikmenn úr öllum félögunum í sína leiki, en þó með þeim takmörkunum að félagsliðið sem þeir mæta hverju sinni tilkynnir fyrst sinn leikmannahóp. Um aðra helgi mæta SA Víkingar U20 liðinu í tvígang. U20 landsliðmenn úr röðum SA munu því væntanlega spila marga leiki þegar liðið mætir Reykjavíkurfélögunum.

Leikmenn frá SA sem eru í hópi U20 og munu því margir hverjir spila bæði með SA Víkingum og U20 liðinu í Toppdeildinni: Alex Máni Ingason, Aron Freyr Gautason, Aron Ingason, Bjarki Jóhannsson, Bjartur Westin, Brynjar Örn Ólafsson, Elvar Ingi Sigurðsson, Elvar Skúlason, Finnur Bessi Finsson, Fjölnir Sigurjónsson, Hrannar Sigurðsson, Jón Magnússon, Mikael Eiríksson, Sölvi Blöndal og Stefán Guðnason.

Þess má einnig geta að í vetur verða þrjár svokallaðar ofurhelgar í Toppdeild karla og ein í Toppdeild kvenna, eins og í fyrra. Þá mætast öll þrjú liðin einu sinni sömu helgina, á föstudegi, laugardegi og sunnudegi. Í Toppdeild karla verður ein ofurhelgi í hverri höll.

Meistaraflokkur SA Víkinga

  • Markverðir
    Jakob Ernfelt Jóhannesson
    Róbert Andri Steingrímsson
  • Varnarmenn
    Agnar Dan Agnarsson
    Aron Gunnar Ingason
    Atli Þór Sveinsson
    Daníel Snær Ryan
    Elvar Örn Skúlason
    Gabríel Snær Benjamínsson
    Gunnar Aðalgeir Arason
    Ingvar Þór Jónsson
    Sigurður Freyr Þorsteinsson
    Ormur Karl Jónsson
  • Sóknarmenn
    Alex Máni Ingason
    Arnar Helgi Kristjánsson
    Aron Freyr Gautason
    Baltasar Ari Hjálmarsson
    Bjarki Þór Jóhannsson
    Bjartur Westin
    Hafþór Andri Sigrúnarson
    Heiðar Gauti Jóhannsson
    Jóhann Már Leifsson
    Matthías Már Stefánsson
    Mikael Darri Eiríksson
    Pétur Elvar Sigurðsson
    Unnar Hafberg Rúnarsson

  • Komnir
    Gunnar Aðalgeir Arason (From GIJS Groningen)
  • Farnir
    Andri Már Mikaelsson í hléi vegna meiðsla
    Bjarmi Kristjánsson til Vojens í Danmörku
    Dagur Freyr Jónasson hættur
    Marek Vybostok til Slóvakíu
    Orri Blöndal í pásu
    Ólafur Baldvin Björgvinsson til Esbjerg í Danmörku
    Robbe Delport til Chiefs Leuven í Belgíu
    Uni Steinn Sigurðarson Blöndal til Danbury Hat Tricks í Bandaríkjunum