Fara í efni
Þór

Bæjarslagur á Brekkunni og þrjú lið á útivelli

Það verður nóg um að vera á íþróttasviðinu í dag, en flest þeirra Akureyrarliða sem verða í eldlínunni spila þó sína leiki á suðvesturhorninu. Eini viðburðuinn á Akureyri er reyndar af stærra taginu, bæjarslagur í fótbolta, sem fjallað er um í sér greinum í gær og í dag. Þá er einnig fjallað í sér grein um upphaf hokkítímabilsins hjá SA Víkingum í Toppdeild karla.


Þriðji leikur KA/Þórs í Olísdeild kvenna er á dagskrá í dag og vonast eftir fyrsta sigrinum á leiktíðinni.

  • Handbolti
    Olísdeild kvenna, 3. umferð
    Skógarsel í Breiðholti kl. 15
    ÍR - KA/Þór


Fjögur lið berjast um áframhaldandi veru í Bestu deild kvenna í fótbolta. Tvö þeirra fá sæti, tvö falla niður um deild. Að loknum 18 umferðum og fyrir þennan þriggja umferða lokakafla er Fram með 22 stig, Valur 20, Víkingur 20 og Þór/KA 19. Níu gríðarlega mikilvæg stig í boði á lokakaflanum og útileikur á dagskránni hjá Þór/KA í dag.

  • Fótbolti
    Besta deild kvenna, neðri hluti
    Valsvöllur (N1 völlurinn að Hlíðarenda) kl. 16
    Valur - Þór/KA


SA Víkingar, karlalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí, hefur leik á Íslandsmótinu í dag. Þrisvar á undanförnum fjórum árum hefur lið SA mátt horfa á eftir Íslandsbikarnum í Laugardalinn til Skautafélags Akureyrar. Nýr þjálfari er mættur til leiks og að sjálfsögðu stefnt að því að vinna titla.

  • Íshokkí
    Toppdeild karla
    Egilshöll kl. 16:45
    Fjölnir - SA


„Flóðljósaleikur“ á dagskrá á KA-vellinum á laugardagskvöldi, bæjarslagur sem er annað og meira en bæjarslagur því bæði lið eiga í mikilli og spennandi baráttu um að halda sér í Bestu deildinni. Sjá sér umfjöllun um leikinn í gær og í dag.

  • Fótbolti
    Besta deild karla, neðri hluti
    KA-völlur (Greifavöllurinn) kl. 19:30
    KA - Þór