Þór
Sömdu til 2028 en halda vestur um haf til náms
20.07.2026 kl. 11:30
Bríet Jóhannsdóttir, til vinstri, og Emelía Ósk Krüger að loknum sigurleik gegn Grindavík/Njarðvík fyrr í mánuðinum. Mynd: Ármann Hinrik.
Knattspyrnukonurnar Bríet Jóhannsdóttir og Emelía Ósk Krüger skrifuðu í gær undir nýja samninga við Þór/KA. Samningarnir gilda út keppnistímabilið 2028 en þátttaka þeirra með liðinu verður þó með öðru og minna sniði næstu misseri því báðar hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Þór/KA í bili. Þær Bríet og Emelía Ósk eru á leið vestur um haf og hefja senn háskólanám í Bandaríkjunum, í Tennessee Tech University í Cookeville, um 35.000 manna bæ sem er rúmum 100 kílómterum austur af Nashville. Knattspyrnuskórnir verða vitaskuld með í för og báðar munu leika með liði skólans.
- Nánar um Bríeti og Emelíu í þessari frétt á vef Þórs/KA: