Fara í efni
Þór

Góð byrjun ekki nóg en Þór áfram í 10. sætinu

Aron Birkir Stefánsson kom varði oft með miklum ágætum í leiknum og kom í veg fyrir að sigur Vals yrði enn stærri. Mynd: Ármann Hinrik.

Góð byrjun dugði skammt fyrir Þórsara þegar þeir sóttu Valsmenn heim í 23. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Hlíðarenda í dag, í fyrstu umferð neðri hluta deildarinnar.

Sigfús Fannar Gunnarsson kom Þór yfir á 17. mínútu en Valsmenn svöruðu því með jöfnunarmarki fyrir hlé og þremur mörkum í síðari hálfleik og unnu þar með afar öruggan sigur, 4-1, sem hefði orðið stærri ef Aron Birkir Stefánsson hefði ekki varið mark Þórs með miklum ágætum.

Þór er samt áfram fyrir ofan fallsætin og situr í tíunda sætinu með 21 stig eins og fyrir leik. KA tapaði 3-0 fyrir FH í Kaplakrika og er með 20 stig og Eyjamenn eru áfram með 18 stig á botninum eftir tap gegn Stjörnunni í Garðabæ, 2-0. FH-ingar fóru hins vegar upp í 24 stig og voru ótvíræðir sigurvegarar dagsins í fallbaráttunni.

Um leið má segja að Stjarnan og Valur hafi geirneglt sæti sín í deildinni með sigrunum á ÍBV og Þór því þau eru komin með 31 og 30 stig og þurfa ekki að hafa minnstu áhyggjur af fallbaráttu í fjórum síðustu umferðunum. Þau munu hins vegar slást um sjöunda sætið, sem því miður gefur ekkert hér á landi. Danir eru með nákvæmlega sama keppnisfyrirkomulag og þar fær liðið sem vinnur neðri hlutann tækifæri til að spila um Evrópusæti við liðið sem endar í þriðja eða fjórða sæti. Það mætti skoða.

Aukið vægi Akureyrarslagsins

En úrslit dagsins gera mikilvægi Akureyrarslagsins næsta laugardagskvöld, í flóðljósunum á nýja KA-vellinum, ennþá meira. Þar verður um sannkallaðan Fallslag að ræða, með stóru F-i, og einhvern þýðingarmesta innbyrðisleik KA og Þórs í langan tíma.

Reyndar má segja að ósigur gegn Val á útivelli hafi ekki verið neitt sérstakt áfall fyrir Þórsliðið. Þegar fimm leikir liðsins í neðri hlutanum eru skoðaðir er þetta sá leikur þar sem liðið átti fyrirfram minnsta möguleika á stigum, enda þótt Þór hafi vissulega sótt óvæntan sigur á Hlíðarenda í fyrstu umferð Íslandsmótsins í vor.

Framundan eru þrír leikir Þórsara á Akureyri, útileikur gegn KA og svo heimaleikir gegn ÍBV og Stjörnunni áður en FH-ingar verða heimsóttir í lokaumferðinni. Frasinn „sex stiga leikur“ á svo sannarlega við í leikjunum við KA og ÍBV og það eru þessir þrír leikir á heimaslóðum sem munu ráða mestu um hvort Þórsarar halda sæti sínu í Bestu deildinni.

Opnuðu Þórsvörnina hvað eftir annað

En eftir að hafa haldið markinu hreinu í tveimur sigurleikjum í röð, gegn ÍBV og FH, hlýtur það að vera áhyggjuefni fyrir Þórsara hversu auðveldlega Valsmenn gátu skapað sér fjölmörg marktækifæri í leiknum.

Fyrstu 17 mínúturnar voru virkilega góðar af hálfu Þórsara, þar til þeir náðu forystunni með marki Sigfúsar. Fram að því léku þeir af miklum krafti, héldu Valsmönnum nánast í nauðvörn með vel heppnaðri pressu og verðskulduðu að komast yfir í leiknum, enda hafði boltinn áður smollið í þverslá Valsmarksins eftir skalla Gyrðis Hrafns Guðbrandssonar.

En eftir það tóku Valsmenn gjörsamlega völdin og galopnuðu vörn Akureyrarliðsins hvað eftir annað. Þeir jöfnuðu fljótlega, ógnuðu marki Þórs ítrekað, og úrslitin réðust í raun á fyrstu tíu mínútum síðari hálfleik þegar Valur skoraði tvívegis og staðan var orðin 3-1.

Þórsarar þurftu að sjálfsögðu að sækja eftir að þeir lentu undir og voru ófeimnir við að reyna, hlupu, börðust og freistuðu þess að koma sér í færi. Valsmenn með Tryggva Hrafn Haraldsson í aðalhlutverki nýttu sér hins vegar svæðin sem buðust þeim til að bruna í hverja skyndisóknina á fætur annarri. Tryggvi Hrafn var maður leiksins og lagði upp þrjú marka Hlíðarendaliðsins.

Fyrir utan Aron Birki sem steig ekki feilspor í marki Þórs og forðaði liðinu frá stærra tapi áttu flestir leikmanna liðsins erfitt uppdráttar eftir að Valsmenn tóku völdin á vellinum. Einar Freyr Halldórsson sýndi þó enn og aftur gæði sín á miðjunni og dugnaðinn og viljann vantaði ekki í leikmenn liðsins. Það var líklega skynsamlegt hjá Sigurði Heiðari Höskuldssyni þjálfara Þórs að kippa Kevin Vazquez snemma af velli í seinni hálfleiknum. Spánverjinn verður Þórsurum dýrmætur í slagnum sem framundan er og betra að taka ekki of mikla áhættu.

Sláarskalli og mark frá Sigfúsi

Sigurður þjálfari Þórs tefldi fram sama ellefu manna byrjunarliði og í sigurleiknum gegn FH í 22. umferðinni. Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Ragnar Óli Ragnarsson komu inn í hópinn á ný en Ragnar hafði misst af síðustu sex leikjum Þórs vegna meiðsla.

Þórsarar byrjuðu leikinn af miklum krafti, léku undan nokkrum vindi og pressuðu Valsmenn stíft, og voru hársbreidd frá því að ná forystunni strax á 4. mínútu. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson átti þá hörkuskalla sem Frederik Schram markvörður Vals varði glæsilega í þverslána og út.

Þór náði síðan forystunni á 17. mínútu. Einföld sókn upp hægra megin, föst og hárnákvæm fyrirgjöf Þorra Ingólfssonar inn á markteiginn þar sem Sigfús Fannar Gunnarsson hafði betur í slag við varnarmann Vals og potaði boltanum undir Frederik markvörð og í netið. Staðan 1-0 fyrir Þór.

Aron Birkir Stefánsson markvörður og fyrirliði Þórs sá til þess að Valsmenn jöfnuðu ekki strax í næstu sókn. Tryggvi Hrafn Haraldsson slapp þá inn fyrir vörn Þórsara en Aron Birkir kom út á móti og varði glæsilega yst í vítateignum.

Rétt eftir það fékk Patrick Pedersen framherji Vals og markakóngurinn í sögu efstu deildar gula spjaldið fyrir að hrinda Vilhelm Ottóssyni í kjölfarið á broti Danans á Kevin Vazquez á miðjum vellinum.

Mark og þrjú stangarskot fyrir hlé

Engu munaði að Valsmenn nýttu sér mistök Þórsara á 23. mínútu. Þeir töpuðu þá boltanum rétt utan eigin vítateigs og Dagur Orri Garðarsson slapp einn gegn Aroni Birki en skaut í utanverða stöngina. Valsmenn kvörtuðu og töldu að Degi hefði verið hrint um leið og hann skaut. Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dómari leiksins var ósammála þeim.

Valsmenn jöfnuðu metin á 27. mínútu, 1-1. Hröð sókn einu sinni sem oftar í leiknum og Dagur Orri Garðarsson fékk boltann frá Tryggva Hrafni Haraldssyni, sneri sér rétt utan markteigs og renndi boltanum síðan undir Aron Birki.

Óhætt er að segja að Valsmenn hafi verið óheppnir að ná ekki forystunni áður en Vilhjálmur Alvar flautaði til hálfleiks. Kristófer Dagur Arnarsson átti hættulegt skot frá vítateig í utanverða stöng Þórsmarksins. Tryggvi Hrafn slapp inn fyrir Þórsvörnina í skyndisókn, var einn gegn Aroni í markinu en skaut í hliðarnetið vinstra megin og loks skallaði Patrick Pedersen í stöng eftir enn eina hraða sókn Hlíðarendaliðsins.

Inn á milli ógnuðu Þórsarar í ágætis skyndisókn þegar Ágúst Eðvald Hlynsson komst í færi hægra megin í vítateignum en Frederik lokaði á hann og varði í horn. Staðan var því 1-1 í hálfleik og Þórsarar gátu verið sáttari við þá stöðu en Valsmenn.

Tvö mörk og Valur með leikinn í hendi sér

Valsmenn voru ekki lengi að koma sér í dauðafæri í seinni hálfleiknum því eftir rúma mínútu slapp Tryggvi Hrafn inn fyrir Þórsvörnina og reyndi að leggja boltann í hægra hornið en Aron Birkir sá við honum og varði vel.

Valur náði síðan forystunni á 52. mínútu. Lúkas Logi Heimisson fékk boltann rétt utan vítateigs Þórs, sneri sér og skaut í Gyrði Hrafn, en af honum breytti boltinn um stefnu og sveif í stórum boga yfir varnarlausan Aron Birki í marki Akureyrarliðsins. Valsmenn voru komnir yfir, 2-1. Ólánlegt mark fyrir Þórsara en verðskuldað eftir gangi leiksins.

Sigfús Fannar fékk gula spjaldið á 53. mínútu fyrir að rífa í Jónatan Inga Jónsson sem var kominn á fleygiferð í átt að vítateig Þórsara.

Valsmenn komust í 3-1 á 56. mínútu. Eftir aukaspyrnu Tryggva Hrafns frá hægri skoraði Patrick Pedersen með föstum skalla upp undir þverslána og staðan var orðin afar erfið fyrir Þórsara. Mínútu síðar munaði engu að Jónatan Ingi bætti við marki eftir mistök Þórsara en Aron Birkir varði naumlega skot hans frá vítateig. Aron hafði nóg að gera og varði frá Lúkasi Loga eftir enn eina hraða Valssóknina.

Fimm breytingar á liðinu

Sigurður Hreiðar gerði tvær breytingar á Þórsliðinu á 62. mínútu. Ragnar Óli kom í vörnina og Bjarni Guðjón í vinstri bakvörðinn, fyrir Vilhelm og Kevin en Gyrðir Hrafn var færður fram á miðjuna. Þetta skilaði sér alla vega í færi strax í kjölfarið en Christian Jakobsen skaut rétt yfir Valsmarkið.

Aron Birkir varði enn einu sinni á 70. mínútu þegar Tryggvi Hrafn átti fast skot sem varð hættulegra þegar boltinn breytti stefnu af varnarmanni.

Victor Bertomeu og Atli Sigurjónsson komu inn á fyrir Ágúst Eðvald og Sigfús Fannar, sem eflaust voru báðir orðnir þreyttir eftir mikil hlaup allan tímann og skömmu síðar kom Aron Ingi Magnússon inn á fyrir Yann Affi.

Christian Jakobsen fékk upplagt færi til að laga stöðuna fyrir Þór á 78. mínútu en skaut frá vítateig beint á Frederik í Valsmarkinu.

Fallegasta mark leiksins kom á 82. mínútu þegar Myles Veldman fékk boltann frá Tryggva Hrafni og skaut föstu skoti af 20 metra færi í stöng og inn, 4-1.

Þorri Ingólfsson átti ágætis tilraun á 89. mínútu þegar hann tók góðan sprett og skaut síðan rétt yfir Valsmarkið.

Aron Birkir innsiglaði frábæran leik sinn í Þórsmarkinu þegar venjulegur leiktími var að renna út þegar hann varði enn frá Tryggva Hrafni sem var sloppinn einn gegn honum. Tryggva tókst því ekki að skora þrátt fyrir nokkur upplögð færi en stoðsendingarnar hans þrjár gerðu út um leikinn.

Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson – Kristófer Kristjánsson, Yann Emmanuel Affi (Aron Ingi Magnússon 76.), Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Vilhelm Ottó B. Ottósson (Bjarni Guðjón Brynjólfsson 62.) – Einar Freyr Halldórsson, Kevin Vazquez (Ragnar Óli Ragnarsson 62.), Þorri Ingólfsson – Christian Jakobsen, Ágúst Eðvald Hauksson (Victor Bertomeu 71.), Sigfús Fannar Gunnarsson (Atli Sigurjónsson 71.)

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni

Nú er fjórum umferðum ólokið og leikir Þórs á lokasprettinum eru sem hér segir:

  • Laugardag 19. september
    19.30 KA - Þór
  • Laugardag 10. október
    14.00 Þór - ÍBV
  • Laugardag 17. október
    14.00 Þór - Stjarnan
  • Laugardag 24. október
    14.00 FH - Þór