Fara í efni
Þór

Sandra María skoraði – 30.411 áhorfendur

Sandra María Jessen fyrir og eftir leik 1. FC Köln á heimavelli gegn Werder Bremen að viðstöddum 30.411 áhorfendum. Myndirnar eru af Instagram-aðgangi Kölnarliðsins.

Sandra María Jessen skoraði eitt marka liðs síns, 1. FC Köln, í 3-0 sigri á Werder Bremen í 24. umferð þýsku Bundesligunnar í gær, eða Google Pixel Frauen Bundesliga eins og deildin er kölluð þessa dagana, að viðstöddum 30.411 áhrfendum. Markið er hennar þriðja í síðustu fjórum leikjum, en hún hefur skorað 12 mörk í 24 deildarleikjum.

Lið Söndru Maríu, 1. FC Köln, er í 8. sæti Bundesligunnar, efstu deild kvenna í Þýskalandi, þegar tveimur umferðum er ólokið af 26. Nokkuð er síðan liðið fór fram úr sínum besta árangri hingað til í stigasöfnun í deildinni og því ljóst að um metár verður hjá liðinu þó svo Evrópusæti sé úr augsýn í þetta skiptið. Kölnarliðið er með 31 stig úr 24 leikjum, en þrjú efstu lið deildarinnar komast í Evrópukeppnir, Meistaradeildina og Evrópubikarinn. 

Alltaf í byrjunarliðinu

Sandra María hefur verið í byrjunarliði Kölnar frá því að hún kom til liðsins og spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið 6. september í fyrra, þá nýkomin frá Þór/KA þar sem hún spilaði frá 2022 til ágústloka í fyrra. Hún hefur verið í byrjunarliðinu í öllum leikjum liðsins á tímabilinu.

Sandra María hefur verið iðin við að koma knettinum í netmöskva andstæðinganna, og hefur auðvitað að auki átt þátt í mörkum og gefið stoðsendingar. Hún hefur skorað 12 mörk í 24 leikjum í deildinni, þar af eina þrennu og varð þá fyrst íslenskra kvenna til að skora þrennu í deildinni. Hún skoraði einnig tvö mörk í tveimur leikjum í bikarkeppninni. Um tíma var hún á toppi listans yfir skoruð mörk, en þær hæstu núna eru með 15 mörk, þremur mörkum fleiri en Sandra María. Kölnarliðið hefur skorað 31 mark í deildinni og Sandra María því með vel yfir þriðjung marka liðsins, eða 38,7%.

Kölnarliðið vann Werder Bremen í gær, 3-0. Sandra María skoraði þrðja mark liðsins á 54. mínútu, en hún skoraði einnig í leiknum þar á undan og hefur skorað þrjú mörk í síðustu fjórum leikjum.

Sandra María Jessen (6) og liðsfélagar fagna fyrir framan stuðningsmenn sína að leik loknum. Myndin er af Instagram-aðgangi félagsins.

Mark Söndru Maríu gegn Werder Bremen má meðal annars sjá á Instagram aðgangi liðsins - sjá hér. Stemningin á leik Kölnarliðsins í gær var frábær, 30.411 áhorfendur og yfir 27.500 stuðningsmenn Kölnar að syngja einkennislag félagsins, eins og sjá má í myndbandi á Instagram-aðgangi félagsins.

Rheinenergie-Stadion í Köln er heimavöllur karlaliðs 1. FC Köln og tekur um 50 þúsund áhorfendur. Mynd: koeln.de. 

Liðið spilar heimaleiki sína að jafnaði á Franz-Kremer-Stadion, sem tekur 5.457 áhorfendur, en leikurinn í gær var það sem þar á bæ er kallað „Highlightspiel“ og fór fram á RheinEnergie-Stadion í Müngersdorf, sem er heimavöllur karlaliðsins og tekur um 50 þúsund áhorfendur.

„Highlightspiel“ er leikur sem félagið velur á hverju ári og hefur gert frá árinu 2023 þar sem spilað er á stærri leikvangi en venjulega. Áhorfendametið frá 2023 hefur ekki verið slegið, en þá mættu 38.365 manns á leik gegn Eintracht Frankfurt. Árið eftir horfðu 30.123 á Kölnarliðið vinna Werder Bremen 2-1 og í fyrra tók Kölnarliðið á móti Bayern München með Glódísi Perlu Viggósdóttur innanborðs að viðstöddum 35.711 áhorfendum.