Fara í efni
Þór

Ótrúleg deyfð og fjórða tap Þórsara í röð

Aron Birkir Stefánsson ver vítaspyrnu Skagamannsins Viktors Jónssonar í dag með miklum tilþrifum. Myndir: Ármann Hinrik

Akurnesingar unnu sanngjarnan 2:1 sigur á Þór í dag, í Bestu deildinni í knattspyrnu á VÍS-gervigrasvelli Þórs í Þorpinu. Þórsarar eru því áfram með sex stig, eru nú 10. sæti en þar fyrir neðan eru FH-ingar með tvö stig og Eyjamenn með eitt.

Sjö umferðum er lokið í deildinni. Þórsarar fengu sex stig úr fyrstu þremur leikjunum en hafa nú tapað fjórum í röð og markatalan í tapleikjunum fjórum er 1:13. Eftir slæma hrinu reiknuðu án efa allir með því að leikmenn kæmu kraftmiklir til leiks í dag, fullir eldmóðs; tilbúnir að deyja fyrir klúbbinn, eins og segir í kvæðinu. En stemningin í liðinu var aldeilis ekki þannig. Þórsarar voru ótrúlega daufir, sérstaklega í fyrri hálfleik sem var í stuttu máli afar slakur af þeirra hálfu. Þeir virkuðu hreinlega litlir í sér, það var eins og þeir væru ekki tilbúnir í að takast á við ákveðna og sterka gestina. Barátta og viljastyrkur hefur gjarnan einkennt lið Þórs í gegnum tíðina og Sigurður Höskuldsson þjálfari er heldur ekki þekktur fyrir neina lognmollu, en þau fingraför hans sáust því miður ekki á liðinu í dag.

Það verður ekki af Akurnesingum tekið að þeir léku mjög vel en Þórsarar voru allt of gestrisnir; gerðu andstæðingunum verkefnið mun auðveldara en það hefði þurft að vera. Það var í raun lyginni líkast hve daufir heimamenn voru, þeim gekk nánast ekkert að halda boltanum, hvað þá að skapa einhverja hættu við mark gestanna fyrri hluta leiksins.

Viktor Jónsson miðherji ÍA er hér í baráttu við Christian „Greko“ Jakobsen, til vinstri, og Ragnar Óla Ragnarsson. Viktor gerði fyrra mark Skagamanna og tók síðan vítaspyrnu sem Aron Birkir Stefánsson varði.

Skagamenn gáfu tóninn strax í byrjun. Voru mjög ákveðnir, eins og þeirra er von og vísa og eftir tæpan stundarfjórðung munaði minnstu að Gísli Eyjólfsson næði forystunni; hann fékk boltann utan vítateigs og þrumaði í þverslá Þórsmarksins.

Þegar hálftími var liðinn varði Aron Birkir Þórsari glæsilega þegar Erik Sandberg skallaði að marki eftir horn en markmaðurinn kom engum vörnum við á 37. mín. þegar ÍA náði forystu. Markið kom eftir aukaspyrnu hægra megin á vellinum eftir klaufalegt og óþarft brot. Boltinn var sendur inn á vítateig og Viktor Jónsson, sá stæðilegi miðherji ÍA, skallaði boltann í netið af stuttu færi.

Seinni hálfleikur byrjaði vægast sagt fjörlega því Akurnesingar skoruðu aftur þegar fjórar mínútur voru liðnar frá því Elías Ingi Árnason flautaði til leiks á ný og sex mínútum eftir það kom mark Þórsara.

Það var Markús Páll Ellertsson sem kom Skagamönnum í 2:0 eftir snögga sókn. Hann lék inn í teig hægra megin, skot hans var ekki fast en en boltinn fór undir Aron Birki og í markið. 

Miðvörðurinn Yann Emmanuel Affi minnkaði svo muninn þegar 54 mín. voru liðnar. Atli Sigurjónsson tók hornspyrnu frá hægri og eftir hefðbundin glímutök við aðstæður sem þessar náði Affi að losa sig og skallaði boltann í netið eins og sést vel á myndum Ármanns Hinriks hér að neðan.

Óhætt er að segja að markið hafi verið langþráð því hvorki fleiri né en 211 leikmínúta var liðin síðan Þór skoraði síðast í deildinni. Norski framherjinn Sebastian Haugland gerði stórkostlegt mark með skoti utan vítateigs á 49. mínútu þegar Þór sigraði Fram í þriðju umferðinni. Síðan hefur Þór tapað fyrir Breiðabliki, KA og Víkingi.

Mark Affis kætti að sjálfsögðu flesta viðstadda en gleðin var því miður skammvinn; hetjan frá Fílabeinsströndinni breyttist í skúrk á skömmum tíma. Þórsarar misstu boltann skammt utan vítateigs ÍA og eftir örfáar sendingar brunaði Markús Páll inn í vítateig Þórs og Affi felldi hann heldur klaufalega. Dómarinn gat ekki annað en blásið í flautuna og bent á vítapunktinn. En Aron Birkir, sem leikið hafði mjög vel – fyrir utan mistökin þegar Markús Páll skoraði – sýndi vel hvers hann er megnugur. 

Viktor Jónsson miðherji og vítaskytta ÍA fékk það verkefni að koma boltanum í Þórsmarkið með skoti af vítapunktinum en Aron Birkir las hugsanir Skagamannsins og varði vítaspyrnuna snilldarlega. Myndir Ármanns Hinriks sýna vel glæsileg tilþrif Þórsarans.
 


Þegar leið á leikinn færðist aukinn kraftur í Þórsara, en Skagamenn lentu þó sjaldan í miklum vandræðum en varamennirnir Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Ingimar Arnar Kristjánsson komust næst því að skora. Bjarni skallaði að marki eftir horn en varnarmaður bjargaði á síðustu stundu og á síðustu andartökunum fékk Ingimar dauðafæri en skallaði þá naumlega framhjá markinu.

Frammistaða Þórs í dag olli miklum vonbrigðum. Var í raun alls ekki boðleg. Ef stemningin, viljinn og trúin verður ekki meiri sem allra fyrst er ekki von á góðu í sumar. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að liðið getur miklu betur og vonandi nær þjálfarateymið og leikmannahópurinn að stilla alla nauðsynlega strengi.

Lið Þórs: Aron Birkir Stefánsson - Kristófer Kristjánsson (Fannar Daði Malmquist Gíslason 80.), Ragnar Óli Ragnarsson, Yann Emmanuel Affi, Sverrir Páll Ingason (Elvar Baldvinsson 68.) - Aron Ingi Magnússon (Bjarni Guðjón Brynjólfsson 59.), Einar Freyr Halldórson, Christan „Greko“ Jakobsen (Sigfús Fannar Gunnarsson 68.) - Atli Sigurjónsson Ágúst Eðvald Hlynsson, Sebastian Haugland (Ingimar Arnar Kristjánsson 59.).

Leikskýrslan á vef KSÍ