Fara í efni
Þór

ÍR-ingar eru sýnd veiði en ekki gefin

Leikmennirnir sem fóru akandi suður í morgun ásamt Andra Snæ Stefánssyni þjálfara, lengst til hægri. Hluti leikmannahópsins ferðaðist í gær. Mynd: Skapti Hallgrímsson

KA og ÍR eigast við í kvöld í undanúrslitum bikarkeppni karla í handbolta og þótt ÍR-ingar séu neðstir í Olís deildinni, efstu deild Íslandsmótsins, segir Andri Snær Stefánsson þjálfari KA að þeir séu stórhættulegir mótherjar. Leikurinn hefst kl. 20:15 og verður í beinni útsendingu RÚV. Sigurliðið mætir annað hvort FH eða Haukum í úrslitaleik á laugardaginn en Hafnarfjarðarliðin mætast í leik sem hefst kl. 18:00.

Tveir markahæstu menn KA í vetur voru fjarri góðu gamni í síðasta leik vegna meiðsla, þeir Morten Linder og Barni Ófeigur Valdimarsson. Andri sagði fyrr í dag mjög ólíklegt að Morten gæti spilað í kvöld en Bjarni Ófeigur væri klár í slaginn.

Sýnd veiði en ekki gefin

„ÍR-ingar eru stórhættulegir, þeir vilja spila mjög hratt og eru erfiðir ef þeir fá sjálfstraust. Við þurfum því að ná upp góðri vörn snemma til að þeir komist ekki í gang. Þeir eru miklar markamaskínur, ég held að ÍR-ingar eigi þrjá af átta markahæstu leikmönnum Olísdeildarinnar,“  sagði Andri Snær í dag.

Hann leggur áherslu á að enginn megin láta blekkjast af stöðu ÍR-liðsins í deildinni. „Staðan skiptir engu máli – alls ekki – þegar komið er út í svona leik. Ég hef sjálfur reynslu af því að tapa fyrir B-deildarliði í undanúrslitum! Þetta er bikarleikur og allt getur gerst.“

Andri Snær segir að hans menn verði að sýna klókindi í sókninni. „Við þurfum að hlaupa hrikalega vel til baka og ná þannig að verjast þeim strax en við þurfum líka að sýna aga og hugrekki í sókninni, við þurfum að fara í réttu færin. En númer eitt, tvö og þrjú þurfum við að stoppa hraðan leik ÍR-inga.“ 

Mikið hefur verið skorað í báðum deildarleikjum liðanna í vetur. „Það hefur verið mikill hraði í báðum leikjum og margar sóknir. Ég býst við samskonar leik og við þurfum að ná stjórn á okkar hlutum snemma. Það er aðeins öðruvísi að spila svona leiki en aðra, umgjörðin og andrúmsloftið eru öðruvísi, og við þurfum að vera töffarar í dag.“

Stuðningurinn mikilvægur

Talandi um andrúmsloft; Andri á von á mörgum KA-mönnum á áhorfendapallana enda séu stuðningsmenn KA oft fleiri en heimamenn á leikjum í Reykjavík. „Ég hlakka mjög til að fá fullt af KA fólki á völlinn. Ég veit að margir KA-menn sem búa fyrir sunnan mæta og margir gera sér fer að norðan á leikinn. Þegar við spiluðum við ÍR í Breiðholtinu um daginn áttum við eiginlega alla stuðningsmennina en þeir eru auðvitað að veiða sitt fólk í húsið þannig að það verður mikilvægt að fá okkar fólk í baráttuna. Það gefur okkur auka kraft.“

Sleit tvíhöfðann!

Andri Snær skartar – ef svo má segja – glæsilegu, bláu gifsi. „Ég spilaði í 20 ár og meiddist nánast aldrei. Svo fer maður í ræktina og slasast!“ sagði hann og hló í morgun. Eftir að hafa tekið vel á því í ræktinni var Andri að færa til dýnu á æfingu þegar vöðvi í upphandlegg, tvíhöfðinn, slitnaði. Hann fór í aðgerð og ber gifsið í nokkrar vikur.

  • Powerade-bikar karla í handbolta, undanúrslit
    Ásvellir í Hafnarfirði kl. 20:15
    ÍR - KA
  • Útsending: Beint á Rúv 2