Fátt um heimaleiki – bikarar í boði syðra
Spennandi vika er fram undan hjá sumum Akureyrarliðanna, þrjú þeirra eiga möguleika á að koma norður með bikar um helgina. Undanúrslit og úrslitaleikir í bikarkeppninni í handbolta eru á dagskránni og þangað eru bæði KA/Þór og karlalið KA komin. Leikið verður í undanúrslitum á miðvikudag og fimmtudag, en úrslitaleikir verða á laugardag. Þá ráðast einnig úrslit í baráttu SR og SA um deildarmeistaratitilinn í íshokkí karla, en liðin mætast tvívegis um helgina.
Á dagskrá eru einnig leikir í Íslandsmótinu í blaki og Lengjubikarnum í knattspyrnu. Einu heimaleikirnir sem eru á dagskrá þessa vikuna eru tveir blakleikir KA gegn Aftureldingu í Unbroken-deild karla. Aðrir leikir eru á útivöllum syðra og eystra.
MIÐVIKUDAGUR 25. FEBRÚAR - fótbolti, blak, handbolti
Karlalið Þórs í knattspyrnu tyllti sér í toppsæti riðils 2 í A-deild Lengjubikars karla með sigri á Völsungi í liðinni viku, en Skagamenn komu sér upp að hlið Þórsara á sunnudag, einnig með sigri á Völsungi. Þórsarar hafa leikið þrjá leiki, en Skagamenn fjóra. Á miðvikudag er komið að heimsókn í Mosfellsbæinn þar sem Þór mætir liði Aftureldingar. Valur er eina liðið í riðlinum sem ekki hefur tapað stigum, er með sex stig úr tveimur leikjum. Afturelding er einnig með sex stig, en úr þremur leikjum.
- Lengjubikar karla í knattspyrnu, A-deild
Varmárvöllur kl. 17:00
Afturelding - Þór - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
- - -
Kvennalið KA í blaki á í harðri baráttu við HK um deildarmeistaratitilinn í Unbroken-deildinni þegar liðin eiga bæði fjóra leiki eftir. HK stendur betur að vígi, er með 44 stig, en KA er með 40 stig. KA sækir Þrótt Fjarðabyggð heim á miðvikudag, en á síðan eftir heimaleik gegn Völsungi og tvo útileiki gegn HK í lokaumferðum deildarinnar.
- Unbroken-deild kvenna í blaki
Íþróttamiðstöðin í Neskaupstað kl. 18:30
Þróttur Fjarðabyggð - KA
Þróttur Fjarðabyggð er í neðsta sæti deildarinnar með eitt stig eftir 15 leiki. Liðin hafa mæst þrisvar í deildinni í vetur. KA vann báðar viðureignirnar á heimavelli 3-0, og 3-2 þegar liðin mættust í Neskaupstað.
- - -
Undanúrslit í bikarkeppni kvenna í handbolta verða á miðvikudag. Leikið er að Ásvöllum í Hafnarfirði. Fyrri undanúrslitaleikurinn er viðureign Hauka og Fram, en kl. 20:15 er komið að KA/Þór að takast á við firnasterkt lið Vals.
- Powerade-bikar kvenna í handbolta, undanúrslit
Ásvellir í Hafnarfirði kl. 20:15
Valur - KA/Þór - Útsending: Beint á Rúv 2
Opin dagskrá
Valur er á toppi Olísdeildarinnar með 32 stig úr 18 leikjum, hefur aðeins tapað tveimur leikjum í deildinni í vetur. Það skiptir ekki endilega máli þegar í bikarleiki er komið, þar getur allt gerst og auðvitað von Akureyringa að úr verði bikarævintýri. Valur vann báðar viðureignir þessara liða í deildinni í vetur, 30-23 á Akureyri í desember og 31-16 syðra í janúar.
FIMMTUDAGUR 26. FEBRÚAR - handbolti
Á fimmtudag er komið að bikarkeppni karla. Fyrri undanúrslitaleikurinn er alvöru Hafnarfjarðarslagur á milli FH og Hauka, en kl. 20:15 er komið að viðureign KA við ÍR. Öfugt við kvennaliðið verður KA að teljast sigurstranglegra liðið í þeirri viðureign. ÍR-ingar eru á botni Olísdeildarinnar með sjö stig úr 19 leikjum, en KA færði sig upp í 5. sætið með sigri á ÍBV á sunnudag. Hér á auðvitað það sama við og hjá konunum, staðan í deildinni skiptir ekki endilega máli þegar í bikarkeppni er komið, þar getur allt gerst og bæði liðin auðvitað að leita eftir alvöru bikarævintýri.
- Powerade-bikar karla í handbolta, undanúrslit
Ásvellir í Hafnarfirði kl. 20:15
ÍR - KA - Útsending: Beint á Rúv 2
Opin dagskrá
Miðað við viðureignir þessara liða í deildinni í vetur má búast við að mikið verði skorað. KA vann fyrri leikinn á Akureyri í október 41-36 og seinni leikinn fyrir sunnan núna í byrjun febrúar 37-31.
FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR - fótbolti
Þór/KA sækir FHL heim á Reyðarfjörð á föstudag í riðli 1 í A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu. Liðið náði sínum fyrstu stigum um liðna helgi þegar glænýtt Bestudeildarlið Grindavíkur/Njarðvíkur mætti í Bogann. Þór/KA er með þrjú stig eftir þrjá leiki, en FHL er án stiga eftir fyrstu tvo leiki sína.
- Lengjubikar kvenna í knattspyrnu, A-deild
Fjarðabyggðarhöllin á Reyðarfirði kl. 18
FHL - Þór/KA
LAUGARDAGUR 28. FEBRÚAR - blak, handbolti, körfubolti, íshokkí
Toppbaráttan í Unbroken-deild karla í blaki er jöfn og spennandi þegar liðin eiga aðeins örfáa leiki eftir. Hamar stendur best að vígi með 44 stig, þá koma Afturelding og Þróttur R. með 40 stig og KA með 39 stig, en liðin eiga mismarga leiki eftir. KA og Afturelding eiga fjóra leiki eftir, Hamar þrjár og Þróttur tvo.
KA leikur síðustu heimaleiki sína í deildinni á laugardag og sunnudag þegar Mosfellingar í Aftureldingu koma í heimsókn norður.
- Unbroken-deild karla í blaki
KA-heimilið kl. 15:00
KA - Afturelding - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
- - -
Fari svo að KA/Þór vinni Val í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta mætir liðið sigurliðinu úr viðureign Hauka og Fram í úrslitaleik á laugardag.
- Powerade-bikar kvenna í handbolta, úrslitaleikur
Ásvellir í Hafnarfirði kl. 15:30
Haukar / Fram - Valur / KA/Þór - Útsending: Rúv
Opin dagskrá
Fari svo að KA vinni ÍR í undanúrslitum bikarkeppni karla í handbolta mætir liðið sigurliðinu úr viðureign FH og Hauka í úrslitaleik á laugardag.
- Powerade-bikar karla í handbolta, úrslitaleikur
Ásvellir í Hafnarfirði kl. 18:30
FH / Haukar - ÍR / KA - Útsending: Rúv 2
Opin dagskrá
- - -
Karlalið Skautafélags Akureyrar í íshokkí sækir lið Skautafélags Reykjavíkur heim um helgina og mætast liðin tvívegis, á laugardag og sunnudag. Upphaflega átti að fara fram þriðja og síðasta Ofurhelgin í Toppdeild karla þar sem öll þrjú liðin mætast sömu helgina, en breyting hefur orðið á leikjadagskrá deildarinnar.
Fjölnir fékk leyfi hjá stjórn ÍHÍ til að gefa þá leiki sem karlaliðið átti eftir í deildinni, án þess að sambandið myndi beita sektarákvæði. Forsagan er sú að í byrjun febrúar var leikjum frestað vegna banaslyss þar sem 17 ára íshokkímaður sem leikið hefur bæði með Fjölni og SR lést í bílslysi. Leikjadagskráin raskaðist því nokkuð, en mótanefnd ÍHÍ hafði komið með tillögu til félaganna um nýja leikdaga. Leikjadagskráin er hins vegar þétt og stutt í að úrslitakeppnin hefjist. Löngu er ljóst að SA og SR munu mætast í úrslitaeinvíginu og í ljósi þess samþykkti ÍHÍ beiðni Fjölnis um að gefa síðustu þrjá leiki sína, tvo gegn SA og einn gegn SR.
Því eru aðeins eftir tveir leikir í deildinni, tvær viðureignir SA og SR í Reykjavík á laugardag og sunnudag.
- Toppdeild karla í íshokkí
Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
SR - SA - Útsending: Icehockeyicelandtv.is
Áskrift að rás eða stökum leikjum
Að frátöldum leikjunum sem Fjölnir gefur hefur SA náð sér í 25 stig, en SR 29. SA fer því í 31 stig með stigunum fyrir gefnu leikina, en SR í 32 stig. Það eru því mikilvæg sex stig í boði í Laugardalnum um helgina. SA og SR hafa mæst sex sinnum í vetur. SA hefur unnið þrjá heima og einn fyrir sunnan, en SR einn úti og einn heima.
Það ræðst því um helgina hvort liðið verður deildarmeistari og tryggir sér oddaleiksréttinn í úrslitaeinvíginu. Ef SR vinnur fyrri leikinn án þess að fara í framlengingu er efsta sætið þeirra, en ef SA nær stigi eða stigum á laugardag ráðast úrslitin í sunnudagsleiknum.
- - -
Karlalið Þórs í körfuknattleik er í hörkubaráttu við að forðast fall úr 1. deildinni, næstefstu deild. Liðið hefur unnið þrjá leiki, eins og Hamar, en Fylkir er fyrir neðan þessi lið með tvo sigra. Fjórar umferðir eru eftir og á laugardag sækja Þórsarar Fjölnismenn heim í Grafarvoginn.
- 1. deild karla í körfubolta, 19. umferð
Dalhús í Grafarvogi kl. 18:30
Fjölnir - Þór - Útsending: KKÍ TV1 á Sýn
Opin dagskrá (til 1. mars)
Fjölnir er í 6. sæti deildarinnar með 11 sigra í 18 leikjum, en Þór í 10. sætinu með þrjá sigra. Fjölnismenn fóru með sigur af hólmi í fyrri leik liðanna sem fram fór á Akureyri í nóvember, 121-115.
SUNNUDAGUR 1. MARS - blak, íshokkí
Seinni leikur helgarinnar hjá KA gegn Aftureldingu í blaki karla er á dagskrá á sunnudag.
- Unbroken-deild karla í blaki
KA-heimilið kl. 14:30
KA - Afturelding - Útsending: Livey.events
Áskrift að rás eða stökum leikjum
- - -
Seinni leikur SA og SR í Laugardalnum verður á sunnudag. Mögulegt er að úrslitin séu þá þegar ráðin í Toppdeildinni, en SA verður að minnsta kosti að ná í eitt stig í laugardagsleiknum og vinna síðan á sunnudag til að tryggja sér efsta sætið.
- Toppdeild karla í íshokkí
Skautahöllin í Laugardal kl. 17:45
SR - SA - Útsending: Icehockeyicelandtv.is
Áskrift að rás eða stökum leikjum
- - -
Lesendur eru hvattir til að minna á íþróttaviðburði hvers kyns sem fram undan eru í meistaraflokkum, sérstaklega ef eitthvað verður út undan og gleymist í þessari vikulegu yfirferð í vikubyrjun hér á akureyri.net - sendið tölvupóst í haraldur@akureyri.net ef koma þarf slíkum upplýsingum á framfæri.