Fara í efni
Þór

Haukar númeri of stórir og unnu KA örugglega

Dagur Gautason lætur vaða að marki Hauka í kvöld. Dagur gerði fimm mörk í leiknum en KA-menn urðu að játa sig sigraða. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

Haukar héldu uppteknum hætti í kvöld þegar þeir sóttu KA-menn heim í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta, Olísdeildinni. Hafnfirðingarnir höfðu unnið átta fyrstu leikina og níundi sigurinn í röð er nú staðreynd. Haukar komust mest 10 mörkum yfir í blálokin áður en Jens Bragi Bergþórsson skoraði fyrir KA á lokasekúndunni; lokatölur 36:27 eftir að Haukar höfðu sjö marka forskot í hálfleik, 19:12.

Haukur eru enn einir á toppnum, hafa 18 stig eftir níu leiki, Valur vann Aftureldingu í dag og er með 14 stig og KA er nú í þriðja sæti með 12 stig að loknum níu leikjum.

KA-maðurinn fyrrverandi Skarphéðinn Ívar Einarsson tók fyrsta skot leiksins en Ágúst Elí Björgvinsson varði; tók þannig upp þráðinn þar sem frá var horfið í sigrinum á FH í Hafnarfirði á miðvikudagskvöldið þar sem markvörður KA fór hamförum, en þetta reyndist því miður ekki fyrirboði um næstu 60 mínútur.

Haukar gerðu fyrstu þrjú mörk leiksins, voru fimm mörkum yfir um miðjan fyrri hálfleikinn og sjö mörkum munaði að loknum fyrri 30 mínútunum sem fyrr segir.

Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, Heimir Örn Árnason aðstoðarmaður hans og nokkrir lærisveinar þeirra fylgjast með gangi mála í KA-heimilinu í kvöld. Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

Það sama var upp á teningnum í seinni hálfleik. Haukarnir voru einfaldlega töluvert sterkari og þetta besta lið landsins í augnablikinu er ekki árennilegur mótherji. KA náði ekki upp jafn öflugri vörn og oft áður og Ágúst Elí komst ekki í sama stuðið og þegar hann er upp á sitt besta. Einfaldasta skýringin er sú að sóknarleikur Hauka var hreinasta afbragð; hinn 18 ára Freyr Aronsson fór hreinlega á kostum og gerði 14 mörk úr 17 skotum, með langskotum, eftir gegnumbrot og af vítalínunni. KA-menn réðu ekkert við hann, og hornamaðurinn Össur Haraldsson reyndist þeim einnig óþægur ljár í þúfu; gerði níu mörk – var með 100% skotnýtingu. Haukar voru líka mjög öflugir í vörn og KA-strákarnir áttu oft í stökustu vandræðum gegn þeim. 

Mörk KA: Dagur Árni Heimisson 10 (þar af 4 víti), Dagur Gautason 5, Bjarni Ófeigur Valdimarsson 4, Jens Bragi Bergþórsson 4, Einar Birgir Stefánsson 3, Arnór Ísak Haddsson 1.

Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 10 af 45 (22%), Bruno Bernat 0.

Mörk Hauka: Freyr Aronsson  14 (þar af 4 víti), Össur Haraldsson 9 (þar af 1 víti), Andri Fannar Elísson 5, Skarphéðinn Ívar Einarsson 4, Ólafur Ægir Ólafsson 2, Sigurður Jefferson Guarino 1, Hjörtur Ingi Halldórsson 1.

Varin skot: Aron Rafn Eðvarðsson 14 af 37 (38%).