Þór
Fimm frá KA í sigurliði U20 smáþjóða í blaki
06.10.2026 kl. 06:00
Fulltrúar blakdeildar KA í U20 landsliðinu voru þær Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir, Inga Björg Brynjúlfsdóttir, Anika Snædís Gautadóttir, Katla Fönn Valsdóttir og Kara Margrét Árnadóttir.
Blakdeild KA átti fimm fulltrúa í U20 ára landsliði kvenna sem sigraði í B-riðli SCA-keppninnar í blaki, smáþjóðamóti sem gefur þjóðum möguleika á stigasöfnun og er jafnframt undankeppni fyrir EM í blaki. Frá þessu er sagt á Facebook-síðu félagsins og á vefnum blakfrettir.is. SCA eru samtök smáþjóða í blaki og stendur fyrir Small Countries Association.
Íslenska liðið var í riðli með Skotlandi, Írlandi og Norður-Írlandi, en í hinum riðlinum voru San Marínó, Mónakó og Færeyjar. Ísland vann gestgjafana í San Marínó í úrslitaleik mótsins í oddahrinu. Íslenska liðið vann fyrstu tvær hrinurnar, en San Marínó náði að snúa taflinu við og jafna í 2-2, en íslenska liðið vann oddahrinuna. Úrslit í einstökum hrinum urðu 31-29, 25-20, 20-25, 20-25 og 15-7.
Fulltrúar blakdeildar KA í liðinu voru þær Sveinbjörg Lilja Ingólfsdóttir, Inga Björg Brynjúlfsdóttir, Anika Snædís Gautadóttir, Katla Fönn Valsdóttir og Kara Margrét Árnadóttir.
Með sigrinum tryggði U20 landslið kvenna sér sæti á Evrópumóti U20 sem fram fer á Ítalíu og Möltu 8.-28. júlí á næsta ári.

Bikarinn á loft. Mynd: blakfrettir.is.