Fara í efni
Þór

Blak: Sigur og tap hjá KA gegn Hamri

Strákarnir í KA höfðu ástæðu til að fagna eftir góðan sigur á Hamri í gær. Mynd af Facebook-síðu KA.

KA mætti Hamri frá Hveragerði tvívegis í KA-heimilinu um helgina í efstu deild karla í blaki. Gestirnir unnu fyrri leikinn á laugardag 3:0 en KA svaraði fyrir sig með góðum 3:1 sigri í gær.

Fyrsta hrinan í laugardagsleiknum var jöfn og spennandi og liðin skiptust á um forystuna. KA var yfir 23:21 og vantaði bara herslumuninn að reka endahnútinn á hrinuna en það voru hins vegar gestirnir sem gerðu 4 síðustu stigin og unnu hana 25:23. Önnur hrina var jöfn framan af en síðan sigu gestirnir framúr og unnu hana 25:18. Þriðja hrinan var keimlík hinni fyrstu; liðin skiptust á um að leiða og KA vantaði herslumuninn í lokin til að klára hrinuna. Í staðinn gerði Hamar 3 síðustu stigin og vann hrinuna 27:25 í upphækkun og leikinn þar með 3:0.

KA svaraði fyrir sig í seinni leiknum

Sunnudagsleikurinn byrjaði á svipuðum nótum. Hamar knúði fram sigur 25:22 í jafnri fyrstu hrinu en þá loksins fór lukkan að snúast KA í vil. Þeir jöfnuðu leikinn með því að vinna aðra hrinu 25:23 og höfðu síðan öll tök í þriðju hrinu sem vannst 25:18. Fjórða hrina var jöfn og spennandi, eins og flestar hrinurnar í viðureignum helgarinnar, en KA hafði betur að lokum, 25:23, og unnu þar með leikinn 3:1.

Þetta var fyrsti sigur KA í deildinni en fyrir viðureignir helgarinnar hafði KA tapað gegn Þrótti í Reykjavík. Næstu leikir liðsins eru tveir útileikir gegn Vestra á Ísafirði, 24. og 25. október.