Fara í efni
Þór

Dregið í bikarkeppnum í handbolta og körfu

Þrjú af Akureyrarliðunum fá útileik, eitt fær heimaleik og eitt situr hjá.

Dregið hefur verið um leiki í bikarkeppnunum í handbolta og körfubolta. Handboltalið Akureyrar fá útileiki, en körfuboltalið karla heimaleik. Konurnar í körfunni sitja hjá í fyrstu umferð.

Í handboltanum er keppt undir merkjum Powerade-bikarsins. Akureyrarliðin öll fá útileik í 32 liða úrslitunum, Þórsarar fara til Eyja þar sem þeir mæta b-liði heimamanna, en KA menn mæta Víkingi. Leikdagar 16 liða úrslita karla eru 8. og 9. október. KA/Þór fær útileik gegn Fjölni, leikdagar kvennaliðanna eru 18. og 19. nóvember.

  • 9. október: Víkingur - KA
  • 8. eða 9. október: ÍBV-B - Þór

Leikir 16 liða úrslitanna:

  • HK – Afturelding
  • ÍBV B – Þór
  • FH – Fram
  • Hvíti Riddarinn – Grótta
  • Selfoss – Valur
  • Víkingur – KA
  • Haukar – Stjarnan
  • ÍR – ÍBV
Aðeins eru 12 lið skráð til leiks í bikarkeppni kvenna og var því dregið í sex leiki, en tvö lið sitja hjá og fara beint í átta liða úrslit.
 
  • 18. eða 19. nóvember: Fjölnir - KA/Þór
Leikir 16 liða úrslitanna:
 
  • Stjarnan – ÍBV
  • Afturelding – ÍR
  • Fjölnir – KA/Þór
  • Víkingur – Selfoss
  • FH – HK
  • Grótta – Fram
Íslands- og bikarmeistarar Vals sátu hjá í drættinum, ásamt Haukum sem taka þátt í Evrópukeppni. Bæði lið fara beint í átta liða úrslit.
 
Heimaleikur í körfunni
 
Einnig hefur verið dregið í 32 liða úrslit bikarkeppni karla og 16 liða úrslit bikarkeppni kvenna í körfuknattleik. Þar er spilað undir merkjum VÍS-bikarsins.
 
Í karlaflokki eru 29 lið skráð til leiks og því dregið í 13 viðureignir í fyrstu umferðinni.
 
  • 18. eða 19. október: Þór - Sindri

Leikir 32 liða úrslitanna:

  • Þór – Sindri
  • ÍA – Álftanes
  • Skallagrímur – KR
  • Haukar – Tindastóll
  • Þór Þ. – Valur
  • Aþena/Leiknir – Vestri
  • Breiðablik – Grindavík
  • Víðir – Njarðvík
  • Laugdælir/Uppsveitir – KV
  • Selfoss – Stjarnan
  • KR b – ÍR
  • Afturelding – Hamar
  • Fjölnir – Höttur

Snæfell, Keflavík og Ármann sitja hjá og eru komin í 16 liða úrslit VÍS bikarkeppninnar.

Aðeins einn leikur er í 32 liða úrslitum, eða fyrstu umferð, VÍS-bikarkeppni kvenna, þar sem 17 lið eru skráð til leiks. Þar mætast Keflavík-B og Fjölnir, en lið Þórs fer beint í 16 liða úrslit. Liðin sem fara beint í 16 liða úrslit: Aþena, Ármann, Breiðablik, Grindavík, Haukar, ÍR, Keflavík, KR, Njarðvík, Selfoss, Stjarnan, Tindastóll, Valur, Þór A. og Þór Þ.