Fara í efni
Þór

Sandra María meiddist og verður frá um tíma

Sandra María Jessen í leiknum gegn Bayern München í gær. Mynd af heimasíðu 1. FC Köln.

Sandra María Jessen, landsliðskona í knattspyrnu hjá 1. FC Köln, meiddist á hné í gær þegar Kölnarliðið tapaði 5:2 á útivelli fyrir meisturum Bayern München í þýsku deildinni. Við skoðun kom í ljós að brjósk skaddaðist og Sandra María þarf í aðgerð. Greint er frá þessu á vef félagsins í dag, þar sem segir að hún verði því frá æfingum og keppni um tíma.

Leikurinn var í fimmtu umferð deildarinnar. Bayern hefur unnið alla fimm leikina og er efst með 15 stig en Köln er í fjórða sæti með níu stig.