Bríet Kristý tvöfaldur Íslandsmeistari – MYNDIR
Brottflutti Akureyringurinn, Bríet Kristý Gunnarsdóttir, sem keppir undir merkjum Tinds í hjólreiðum tryggði sér í morgun annan Íslandsmeistaratitilinn á tveimur dögum þegar hún vann svokallaða criterium-keppni og annan daginn í röð skákaði hún Akureyringnum Hafdísi Sigurðardóttur úr Hjólreiðafélagi Akureyrar með nokkrum sekúndubrotum. Davíð Jónsson úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur varð þrefaldur Íslandsmeistari, vann allar greinarnar sem keppt var í um helgina.
Í criterium-hjólreiðum er hjólaður hringur í ákveðinn tíma, mismunandi eftir flokkum, og síðan einn bjölluhringur eftir að sá tími er liðinn. Í A-flokki kvenna var hjólað í 60 mínútur, ásamt bjölluhringnum. Hjólað var um Goðanes, Óðinsnes og Baldursnes á Akureyri. Þegar upp var staðið munaði 0,9 sekúndum á Bríeti Kristý, sem vann Íslandsmeistaratitilinn, og Hafdísi sem varð önnur. Silja Jóhannesdóttir úr HFA varð þriðja, einni sekúndu á eftir Hafdísi. Bríet Kristý hjólaði á tímanum 1:09:59,9 klst.

Íslandsmeistarar í tímatöku á fimmtudag, Hafdís Sigurðardóttir og Davíð Jónsson (vinstri), Íslandsmeistarar í götuhjólreiðum í gær, Bríet Kristý Gunnarsdóttir og Davíð Jónsson (miðja) og Íslandsmeistarar í criterium í dag, einnig Bríet Kristý og Davíð. Myndir: Hjólreiðasamband Íslands.
Eins og Akureyri.net sagði frá í gær munaði aðeins 0,23 sekúndum á þeim Bríeti Kristý og Hafdísi í keppni í götuhjólreiðum í Svarfaðardal í gær, eftir að þær höfðu hjólað 117 kílómetra. Á fimmtudag var það hins vegar Hafdís sem hafði betur þegar keppt var í tímatöku frammi í Eyjafjarðarsveit. Þá tryggði Hafdís sér Íslandsmeistaratitilinn í tímatöku í fimmta skiptið í röð og var þá með 56 sekúndum betri tíma en Bríet Kristý sem varð önnur.

Matthías Árni Jónsson kláraði allar keppnirnar, en hann var eini keppandinn í U13 flokki. Móðir hans, Bríet Kristý Gunnarsdóttir, er tvöfaldur Íslandsmeistari. Myndir: Ármann Hinrik.
Áður hefur komið fram að sonur Hafdísar, Aron Breki Haraldsson, og dóttir Silju, Júlía Björg Jóhannsdóttir, kepptu bæði í tímatökunni fyrir hönd HFA á fimmtudag. En Bríet Kristý mætti einnig með son sinn norður. Sá heitir Matthías Árni Jónsson og kláraði allar þrjár keppnirnar í U13 ára flokki og var reyndar eini keppandinn í þeim flokki.
Eins og í gær var einnig mjótt á munum í B-flokki kvenna þar sem sömu tvær úr HFA háðu harða keppni. Aftur hafði Harpa Mjöll Hermannsdóttir betur gegn Þórdísi Rósu Sigurðardóttur. Harpa náði 0,8 sekúndum betri tíma.
HFA átti aðeins fjóra keppendur í dag, allt konur. Árangur þeirra var sem hér segir:
- A-flokkur kvenna (Elite):
2. Hafdís Sigurðardóttir - 1:04:00,8 klst.
3. Silja Jóhannesdóttir - 1:04:01,8 klst. - B-flokkur kvenna
1. Harpa Mjöll Hermannsdóttir - 47:00,6 mín.
2. Þórdís Rósa Sigurðardóttir - 47:01,4 mín.
Davíð Jónsson úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur varð þrefaldur Íslandsmeistari um helgina, vann keppnina í tímatöku á fimmtudag, götuhjólreiðarnar í gær og svo criterium-keppnina í dag.
Sigurvegarar í einstökum flokkum
- Konur
A-flokkur - Elite: Bríet Kristý Gunnarsdóttir, Tindi – 1:03:59,9 klst.
B-flokkur: Harpa Mjöll Hermannsdóttir, HFA – 47:00,6 mín.
U17 flokkur: Friðrika Rún Þorsteinsdóttir, HFR – 49:08,9 mín. - Karlar
A-flokkur - Elite: Davíð Jónsson, HFR – 1:12:02,8 klst.
B-flokkur: Kristinn Kristjánsson, Tindi – 47:13,5 mín.
Junior: Sólon Kári Sölvason, HFR – 46:58,0 mín.
U17: Þorvaldur Atli Björgvinsson, HFR – 47:42,7 mín.
U13: Matthías Árni Jónsson, Tindi – 17:54,6 mín.
Öll úrslit og tíma má finna á vefnum timataka.net.
- - -
- Criterium-keppni í hjólreiðum fer þannig fram að hjólaður er hringur í ákveðinn tíma, mismunandi lengi eftir flokkum, og síðan kláraður einn hringur eftir að sá tími er liðinn, svokallaður bjölluhringur.
- A-kvenna: 60 mínútur
- B-kvenna: 45 mínútur
- A-karla: 70 mínútur
- B-karla: 45 mínútur
- Junior karla: 45 mínútur
- U17 karla: 45 mínútur
- U13 karla: 15 mínútur
Sem fyrr var Ármann Hinrik á vaktinni með myndavélina og má sjá afraksturinn hér að neðan.