Fara í efni
Sverrir Páll

Sundfélagið Óðinn sigurvegari 2. deildar

Sigurlið Sundfélagsins Óðins í 2. deild bikarkeppni Sundsambands Íslands. Efri röð frá vinstri: Ívan Elí Ólafsson, Jón Ingi Einarsson, Benedikt Már Þorvaldsson, Magni Rafn Ragnarsson og Alexander Reid McCormick. Á myndina vantar Lárus Högna Gunnarsson. Neðri röð frá vinstri: Ragnheiður Runólfsdóttir þjálfari, Viktoría Rós Guseva, Katrín Birta Birkisdóttir, Ísabella Jóhannsdóttir, Friðrika Sif Ágústsdóttir, Lovísa Austfjörð. Mynd: Sundfélagið Óðinn.

Sundfélagið Óðinn er sigurvegari í 2. deild bikarkeppni Sundsambands Íslands sem fram fór síðastliðinn laugardag í Reykjanesbæ. Sundlið Óðins unnu bæði í karla- og kvennaflokki 2. deildar.

Að þessu sinni var aftur tekið upp það fyrirkomulag að keppa bæði í karla- og kvennaflokki, en í fyrra var aðeins keppt um sameiginlegan bikar. Sundfélag Hafnarfjarðar er bikarmeistari bæði í kvenna- og karlaflokki í 1. deild, en Sundfélagið Óðinn tvöfaldur sigurvegari í 2. deild. Óðinn náði 133 stigum í kvennaflokknum og 154 í karlaflokknum. 

Að loknu bikarmótinu fór fram uppskeruhátíð þar sem meðal annars var tilkynnt um val á sundfólki ársins. Myndir frá mótinu má finna í albúmi á Flickr-síðu Sundsambandsins - sjá hér.

Kvennalið Óðins, sigurvegari í bikarkeppni SSÍ, 2. deild 2026, ásamt þjálfaranum. Frá vinstri: Friðrika Sif Ágústsdóttir, Viktoría Ròs Guseva, Katrín Birta Birkisdóttir, Lovísa Austfjörð, Ísabella Jóhannsdóttir og Ragnheiður Runólfsdóttir þjálfari. - Myndin er fengin úr albúmi á Flickr-síðu Sundsambandsins.

Karlalið Óðins, sigurvegari í 2. deild bikarkeppni SSÍ 2026. Frá vinstri: Benedikt Már Þorvaldsson, Jón Ingi Einarsson, Lárus Högni Gunnarsson, Magni Rafn Ragnarsson og Alexander Reid McCormick. - Myndin er fengin úr albúmi á Flickr-síðu Sundsambandsins.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00