Fara í efni
Sverrir Páll

Stórgóðir Þórsarar unnu Fylki – MYNDIR

Einlæg gleði! Sigfús Fannar Gunnarsson (37) hleypur að stjórnarmönnum knattspyrnudeildar Þórs eftir að hann gerði fjórða mark liðsins í gær. Formaðurinn, Sveinn Elías Jónsson í rauðu vesti, og Aðalgeir Axelsson fagna af innlifun. Myndir: Ármann Hinrik

Öflugt Þórslið sigraði Fylki 4:1 í Boganum í gærkvöld í Lengjudeildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Njarðvík og ÍR eru efst í deildinni með 11 stig að fimm umferðum loknum en Þór og Þróttur eru með 10 stig.

Sigur Þórs var sanngjarn. Liðið var heilsteypt, lék vel á löngum köflum og stjórnaði ferðinni, hvort sem leikmenn tóku á móti gestunum framarlega á vellinum eða vörðust aftarlega og beittu skyndisóknum.

Útherjinn Clement Bayiha kom Þór yfir eftir stundarfjórðung með fyrsta marki sínu í deildinni, gestirnir jöfnuðu snemma í seinni hálfleik þegar Tumi Fannar Gunnarsson skoraði en Ibrahima Balde svaraði um hæl; kom Þór yfir á ný þegar tæp ein og hálf mínúta var frá því Fylkir skoraði.

Þórsarar skoruðu svo í tvígang á síðustu andartökum leiksins. Fyrst Sverrir Páll Ingason og síðan Sigfús Fannar Gunnarsson, sem er því áfram markahæstur í deildinni – Sigfús hefur gert sjö mörk í fimm leikjum en Grindvíkingurinn Breki Þór Hermannsson hefur gert sex mörk.

Orri Sigurjónsson, til vinstri, var eins og kóngur í vörninni í gær og Einar Freyr Halldórsson, sýndi enn einu sinni hvers hann er megnugur, aðeins 16 ára. Myndir: Ármann Hinrik

Liðsheild Þórs var öflug sem fyrr segir en nefna verður Orra Sigurjónsson sérstaklega; hann var frábær í leiknum, steig vart feilspor í vörninni.

Í raun væri hægt að telja alla upp; Aron var afar öruggur í markinu og varði einu sinni mjög vel, öll vörnin var góð, sóknarmennirnir ógnandi, með „orkupakkann“ Sigfús Fannar Gunnarsson fremstan í flokki, og miðjumennirnir öflugir eins og áður þótt þreytan væri greinilega farin að segja til sín þegar leið á leikinn. Enda hafa þeir Aron Ingi og Ibrahima Balde leikið nánast allar mínútur í deildarleikjunum fimm – og undantekningarlítið staðið sig afar vel – og Einar Freyr Halldórsson hverja einustu mínútu; sá síðastnefndi hættir ekki að koma á óvart, ótrúlega þroskaður leikmaður, aðeins 16 ára. Þremenningarnir á miðjunni ná skemmtilega vel saman. 

Leikskýrslan

Staðan í deildinni

1:0 – Þórsarar sneru vörn í sókn eftir að Orri Sigurjónsson gerði mjög vel og vann boltann af Eyþór Aroni Wöhler á miðjum vallarhelmingi Þórs.  Hægri bakvörðurinn Hermida fékk boltann og sendi laglega fram hægri kantinn þar sem Clement Bayiha var fljótari en tveir nálægir varnarmenn, komst inn á teig og skoraði undir markmanninn sem kom út á móti. Þetta var á 14. mínútu.


_ _ _

  • Sjaldgæf innáskipting átti sér stað þegar hálftími var liðinn. Bergvin Fannar Gunnarsson dómari varð að hætta störfum vegna meiðsla og Sveinn Arnarsson leysti hann af hólmi. Bergvin er hér lengst til hægri og Sveinn vinstra megin.

  • Fylkismenn voru ljónheppnir strax á annarri mínútu seinni hálfleiks; Sigfús Fannar tók á rás frá miðlínu eftir að Balde sneri af sér mann á miðjum vallarhelmingi Þórs og sendi boltann fram völlinn, Sigfús var á undan Orra Sveini Segatta sem tók þá miklu áhættu að toga í hönd Þórsarans í nokkrar sekúndur, hægði þannig á Sigfúsi sem missti boltann þegar hann nálgaðist vítateiginn. Reka hefði átt Orra Svein af velli en einhver hlýtur að hafa verið fyrir sjónlínu dómaranna því þeir sáu ekkert athugavert. 

1:1 – Fylkir jafnaði á 54. mín. Einn miðjumanna liðsins, Ragnar Bragi Sveinsson, fékk aldrei þessu vant nægan tíma til að athafna sig, sendi boltann inn í miðjan vítateig á Tómas Fannar Gunnarsson sem var óvaldur og skoraði.

2:1 – Ekki leið nema ein og hálf mínúta þar til Þórsarar voru komnir með forystuna aftur. Vinstri bakvörðurinn Vilhelm Ottó sendi boltann af vinstri kanti inn á vítateig þar sem Ibrahima Balde tók hann viðstöðulaust á lofti og þrumaði í markið með vinstra fæti.


_ _ _

3:1 – Leiktíminn var að renna út skv. vallarklukkunni þegar hinn 17 ára Sverrir Páll Ingason gerði þriðja mark Þórs. Balde tók boltann laglega niður í vítaeignum, renndi á Ými Geirsson sem sendi boltann fyrir markið þar sem Sverrir gat ekki annað en skorað. Það er án efa draumur þjálfara þegar varamenn hafa áhrif á leiki og það átti við í þessu tilfelli; Sverrir Páll kom inná þegar 20 mín. voru eftir og Ýmir 10 mín. síðar.  


_ _ _

4:1 – Aftur leið einungis ein og hálf mínúta á milli marka hjá Þór. Eftir klafs á miðjum vallarhelmingi Fylkis fékk Sigfús Fannar Gunnarsson boltann, tók á rás í átt að marki, fór framhjá tveimur varnarmönnum og sendi boltann laglega framhjá markverðinum. Þá var liðin rúmlega ein af fjögurra mínútna uppbótartíma.

Næstu leikir Þórs í deildinni:

  • Völsungur - Þór, miðvikudag 4. júní kl. 19:15
  • Þór - ÍR, mánudag 9. júní kl. 16:00
  • Njarðvík - Þór, laugardag 14. júní kl. 16:00

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00

Og Björk að sjálfsögðu

Sverrir Páll skrifar
27. febrúar 2024 | kl. 15:00

Hver er eins og hann/hún er

Sverrir Páll skrifar
27. október 2023 | kl. 06:00