Fara í efni
Sverrir Páll

Stabat Mater tónleikar í Akureyrarkirkju í dag

Tónlistarfélag Akureyrar stendur fyrir tvennum Stabat Mater tónleikum nú á föstunni – þeim fyrri í dag – undir yfirskriftinni Mærin Mæra en það er tilvitnun í þýðingu Matthíasar Jochumssonar á ljóðinu; Stóð við krossinn mærin mæra mændi á soninn hjartakæra.
 
Báðir tónleikarnir verða í Akureyrarkirkju og hefjast kl. 16.00. Á tónleikunum í dag verður Stabat mater dolorosa eftir Giovanni Battista Pergolesi og á seinni tónleikunum, sunnudaginn 22. mars, verður flutt Stabat Mater eftir Arvo Pärt og einnig frumflutt splunkunýtt verk Þorvaldar Arnar Davíðssonar um Síðustu orð Krists á krossinum.
 
Söngkonurnar Heiðdís Hanna Sigurðardóttir sópran og Erla Dóra Vogler mezzósópran syngja í verki Pergolesis ásamt strengjakvartett skipuðum Sofiu Fedorovych, Marteini Ingvasyni, Eydísi S. Úlfarsdóttur og Ásdísi Arnardóttur.
 
Erla Dóra og Ásdís koma einnig fram á seinni tónleikunum en aðrir flytjendur þá eru Hlín Pétursdóttir Behrens sópran og Úlfar Trausti Þórðarson tenór ásamt Mariku Alavere fiðluleikara og Kristínu Höllu Bergsdóttur víóluleikara.
 
Aðgangur er ókeypis en frjáls framlög eru vel þegin, segir í tilkynningu frá Tónlistarfélagi Akureyrar. 
 
Tónleikarnir eru styrktir af Tónskáldasjóði Rúv og Stefs, KEA, Tónlistarsjóði og Akureyrarbæ.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00