Fara í efni
Sverrir Páll

Sólskinsbros og gleði í lok „veislunnar“

Myndir: Skapti Hallgrímsson

Sólin brosti sínu breiðasta á Akureyri um miðjan dag og margir settu upp sólskinsbros á félagssvæði KA á lokaspretti 39. N1-móts 5. flokk í knattspyrnu, eins fjölmennasta íþróttamóts landsins, sem hófst á miðvikudaginn. Gleðin var við völd  í dag, þegar flautað var til loka úrslitaleikjanna voru sumir vissulega glaðari en aðrir, en vonandi læra allir og þroskast, sama hvernig fór.

Stjarnan úr Garðabæ og Breiðablik úr Kópavogi  mættust í úrslitaleik í keppni A-liðanna – í Argentínsku deildinni eins og hún er kölluð – og þar höfðu Garðbæingar betur. Stjörnumenn sigruðu örugglega, 6:1, og fögnuðu að vonum innilega, eins og sjá má á minni myndinni. Sú stærri er úr úrslitaleiknum. Leikmenn 12 annarra liða fögnuðu einnig mjög í dag, því keppt er í hvorki fleiri né færri en 13 deildum á mótinu.

Þessi mikla fótboltaveisla gekk vel fyrir sig, eins og Siguróli Sigurðsson, einn þriggja í mótsstjórn sagði við Akureyri.net í viðtali sem birt var fyrr í dag. „Það er svipaður fjöldi keppenda eins og undanfarin ár, en núna virðast vera fleiri sem fylgja krökkunum af því að við upplifum mikla fjölgun á svæðinu,“ sagði Siguróli. „Maturinn hefur verið nálægt því að klárast, bílastæðamálin hafa verið flókin og það er meira rusl. Þetta segir okkur að það eru fleiri að mæta á svæðið en áður.“ – Sjá viðtalið hér

Meira síðar

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00

Og Björk að sjálfsögðu

Sverrir Páll skrifar
27. febrúar 2024 | kl. 15:00