Fara í efni
Sverrir Páll

Samstarf SAk og LSH um krabbameinslækningar

Fjögurra manna læknateymi frá LSH mun sinna krabbameinslækningum á SAk. Mynd: sak.is

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) hefur gert samstarfssamning við Landspítalann (LSH) um krabbameinslækningar á SAk. Tveir læknar munu bætast í teymi þeirra lækna frá LSH sem sinna krabbameinslækningum á SAk og munu því fjórir læknar sinna þjónustunni.

Teymið samanstendur af tveimur læknum sem hafa starfað á SAk um nokkurra ára skeið, þeim Signýju Völu Sveinsdóttur blóðlækni og Örvari Gunnarssyni krabbameinslækni, og svo þeim Þóru Rún Úlfarsdóttur og Ólöfu Kristjönu Baldursdóttur krabbameinslæknum, sem nú bætast við.

Læknarnir munu skiptast á þriggja daga viðveru á Akureyri. Í frétt á vefsíðu SAk er haft eftir Guðna Arnari Guðnasyni, starfandi forstöðulækni lyflækninga á SAk, að stofnunin sé mjög ánægð með samninginn og að hafa tryggt áframhaldandi þjónustu krabbameins- og blóðlækna. „Við hlökkum til samstarfsins og að sjá þjónustuna eflast og þróast enn frekar,“ segir Guðni Arnar í fréttinni.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00