Fara í efni
Sverrir Páll

Leikmenn KA/Þórs og Þórs hlaðnir verðlaunum

Leikmenn karlaliðs Þórs og kvennaliðs KA/Þórs sópuðu að sér viðurkenningum á lokahófi Handknattleikssambands Íslands sem fram fór fyrir helgina. Liðin sigruðu bæði í Grill 66 deildinni, næst efstu deild Íslandsmótsins með glæsibrag og leika því næsta vetur á ný í deild þeirra bestu, Olís deildinni.

Það voru þjálfarar og leikmenn liðanna í deildunum sem kusu.

Þórsararnir Oddur Gretarsson, besti leikmaður og besti sóknarmaður Grill 66 deildarinnar og Brynjar Hólm Grétarsson, besti varnarmaðurinn. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Bestu leikmenn:

  • Oddur Gretarsson, Þór
  • Ída Bjarklind Gunnarsdóttir, Víkingi

Bestu sóknarmenn:

  • Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, KA/Þór
  • Oddur Grétarsson, Þór

Bestu varnarmenn:

  • Anna Þyrí Halldórsdóttir, KA/Þór
  • Brynjar Hólm Grétarsson, Þór

Bestu markmenn:

  • Matea Lonac, KA/Þór
  • Jón Þórarinn Þorsteinsson, Selfoss

Efnilegustu leikmenn:

  • Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, KA/Þór
  • Gunnar Róbertsson, Val2

Bestu þjálfarar:

  • Jónatan Magnússon, KA/Þór
  • Carlos Martin Santos, Selfossi

Verðlaunahafar úr KA/Þór. Frá vinstri: Anna Þyrí Halldórsdóttir, besti varnarmaðurinn, Bergrós Ásta Guðmundsdóttir, besti sóknarmaður og efnilegasti leikmaður deildarinnar, Matea Lonac, besti markmaðurinn, og Jónatan Magnússon, besti þjálfari Grill 66 deildarinnar. Myndir: Skapti Hallgrímsson

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00

Og Björk að sjálfsögðu

Sverrir Páll skrifar
27. febrúar 2024 | kl. 15:00

Hver er eins og hann/hún er

Sverrir Páll skrifar
27. október 2023 | kl. 06:00