Fara í efni
Sverrir Páll

Helgi kjörinn formaður Skógræktarfélagsins

Helgi Þórsson er nýr formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga.

Helgi Þórsson frá Kristnesi var kosinn formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga á aðalfundi þess á dögunum. Fráfarandi formaður, Sigurður Hólm Sæmundsson, gaf ekki kost á sér fram.

Í stjórn eru sjö aðalmenn og þrír til vara. Hver stjórnarliði er kosinn til þriggja ára í senn og hver varastjórnarliði er kosinn til eins árs í senn. Hin nýja stjórn er þannig skipuð:

Formaður: Helgi Þórsson.

Varaformaður: Sigurður Hóm Sæmundsson.

Ritari: Helga Ösp Jónsdóttir

Gjaldkeri: Rebekka Kristín Garðarsdóttir.

Meðstjórnendur: Sigurður Arnarson, Gunnar Már Gunnarsson og Ásgeir Þór Ásgeirsson.

Varamenn: Tryggvi Marinósson, Alfa Dröfn Jóhannsdóttir og Ísak Már Jóhannesson.

Um leið og við óskum þessu fróma fólki velfarnaðar í starfi viljum við þakka fráfarandi stjórn gott og óeigingjarnt starf í þágu skógræktar í Eyjafirði. Sérstakar þakkir fá Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, Óli Þór Jónsson og Pétur Halldórsson fyrir sinn hlut, en þau gengu úr stjórn. Öll munu þau þó halda áfram að sinna verkefnum fyrir félagið þegar á þarf að halda,“ segir í tilkynningu frá félaginu.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00