Fara í efni
Sverrir Páll

Heilbrigðisnefnd lögð niður frá áramótum

Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra leggur áherslu á að starfsemi nefndarinnar verði óskert til áramóta, að hagsmunir starfsfólks verði tryggðir, að fjárhagslegar skuldbindingar sveitarfélaganna verði skýrðar og að fyrir liggi heildstæð tillaga um þau verkefni sem áfram verða á ábyrgð sveitarfélaga fyrir 1. október.

Þetta kemur fram í bókun nefndarinnar á síðasta fundi þar sem fjallað var um lagabreytingar sem samþykktar voru af Alþingi í júní og fela meðal annars í sér að núverandi fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga fellur niður frá og með 1. janúar 2027. 

Verkefni flutt og stofnanir sameinaðar

Alþingi samþykkti þann 16. júní lög um breytingar á ýmsum lögum sem fela í sér að núverandi fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga fellur niður frá og með næstu áramótum.

Með þessum lagabreytingum er gert ráð fyrir að verkefni á sviði hollustuhátta og mengunarvarna flytjist til Umhverfis- og orkustofnunar og að heilbrigðisnefndir sveitarfélaga verði lagðar niður. Í því sambandi liggur fyrir að hefja þarf undirbúning að uppsögnum og lokunum samninga, svo sem húsaleigusamninga, þjónustusamninga og ráðningarsamninga starfsmanna.

Á sama tíma voru einnig samþykkt lög frá Alþingi um Stofnun atvinnuveganna með sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs frá og með 1. janúar 2027, þar með að matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga flytjist til þessarar nýju stofnunar frá sama tíma.

Kallar á yfirferð samþykkta sveitarfélaga

Boðaðar lagabreytingar munu einnig kalla á yfirferð og breytingar á samþykktum sveitarfélaga sem byggja á grundvelli laga um hollustuhætti og mengunarvarnir. Það á til dæmis við um umgengni og þrifnað, samþykktir um hunda- og kattahald, meðhöndlun úrgangs, og sorphirðu, sem og lögreglusamþykktir.

Heilbrigðisnefndin hvetur sveitarfélög á svæðinu til að hefja kortlagningu á gildandi samþykktum sem tengjast hollustuháttum, mengunarvörnum, umgengni, dýrahaldi, úrgangsmálum, sorphirðu og öðrum staðbundnum verkefnum. 

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00