Fara í efni
Sverrir Páll

Háskólinn á Akureyri fær 30 milljóna styrk

Gísli Kort Kristófersson, sérfræðingur í geðhjúkrun og prófessor við hjúkrunarfræðideild skólans, stýrir þátttöku skólans í verkefninu.

Háskólinn á Akureyri hefur fengið styrk að upphæð 200 þúsund evrur, eða rúmar 30 milljónir króna, vegna þátttöku í alþjóðlegu rannsóknarverkefni innan Northern Periphery and Arctic áætlunarinnar (NPA). Gísli Kort Kristófersson, sérfræðingur í geðhjúkrun og prófessor við hjúkrunarfræðideild skólans, stýrir þátttöku skólans í verkefninu. Frá þessu er greint á vef Háskólans.

Rannsakendur frá Íslandi, Finnlandi og Írlandi munu vinna saman að þróun nýrra lausna sem eiga að bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu í dreifbýli og á norðurslóðum. Fjármögnun verkefnisins nemur rúmlega einni milljón evra. Háskólinn í Austur-Finnlandi leiðir verkefnið, sem ber heitið PRESAFE (Safety, Sustainability and Accessibility in Remote Nurse Prescribing across NPA Regions). Aðrir samstarfsaðilar eru Háskólinn í Limerick á Írlandi og heilbrigðisyfirvöld í Finnlandi. 

Nánar er fjallað um viðfangsefnið í frétt á vef Háskólans á Akureyri.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00