Fara í efni
Sverrir Páll

Hafdís Íslandsmeistari í malarhjólreiðum

Hafdís Sigurðardóttir Íslandsmeistari í malarhjólreiðum 2026. Í öðru sæti varð Andrea Kolbeinsdóttir úr Ægi og Bríet Kristý Gunnarsdóttir úr Tindi í því þriðja. Mynd: Hjólreiðafélag Akureyrar.

Hafdís Sigurðardóttir úr Hjólreiðafélagi Akureyrar bætti enn einum Íslandsmeistaratitlinum í safnið í dag þegar hún vann Íslandsmótið í malarhjólreiðum annað árið í röð. Hafdís kom í mark með rúmlega þremur mínútum betri tíma en næsti keppandi í kvennaflokki. 

Hjólaðir voru 123 kílómetrar á malarvegum Strandasýslu í Strandir Gravel hjólreiðakeppninni, sem jafnframt var Íslandsmót í greininni. Hafdís hjólaði vegalengdina á fjórum tímum, 18 mínútum og 33 sekúndum.

Lagt var af stað frá Hótel Laugarhóli í Bjarnarfirði og hjólað að Gjögri þar sem snúið var við og hjólað sömu leið til baka að Laugarhóli. Skráðir keppendur voru 38, sjö í kvennaflokki og 31 í karlaflokki. 

Fjórir keppendur úr Hjólreiðafélagi Akureyrar spreyttu sig á mölinni á Ströndum. Auk Hafdísar voru það Sóley Svansdóttir sem endaði í 5. sæti í kvennaflokki, Harpa Mjöll Hermannsdóttir sem varð í 7. sæti í kvennaflokki og Rögnvaldur Már Helgason sem varð í 14. sæti í karlaflokki. Fimmti Akureyringurinn, Bríet Kristý Gunnarsdóttir sem keppir fyrir Tind, varð í 3. sæti í kvennaflokki.

Þrír efstu í hvorum flokki:

Smellið á hvorn flokk fyrir sig til að sjá öll úrslit í flokkunum.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00