Fara í efni
Sverrir Páll

Bílastæðum fjölgað um 27 við Sunnuhlíð?

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Eigandi verslanakjarnans Sunnuhlíðar í Glerárhverfi hefur óskað eftir því að skipulagi lóðar verði breytt í þeim tilgangi að hægt verði að fjölga bílastæðum um 27. Óskin er ekki síst sett fram vegna starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands; heilsugæslustöð bæjarins flutti í húsið (Sunnuhlíð 12) snemma árs 2024 og strax þá var ljóst að bílastæði yrðu af skornum skammti.

Skipulagsráð Akureyrar tók í gær fyrir tillögu fasteignafélagsins Heima, eiganda húsnæðisins, og samþykkti að leggja til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á deiliskipulagi sem fæli í sér stækkun bílstæðis yrði auglýst. Hugmyndin er að ný stæði verði norðan við annað af núverandi bílastæðum, á grassvæði við hlið lítils leikvallar austan við húsið, á milli Sunnuhlíðar 12 og svæðis íþróttafélagsins Þórs.

Enn frekari stækkun?

„Útfæra þarf tillögu að breytingu í samráði við skipulagssvið og umhverfis- og mannvirkjasvið,“ segir í fundargerð skipulagsráðs og ráðið fól skipulagsfulltrúa jafnframt að skoða í samvinnu við umhverfis- og mannvirkjasvið enn frekari stækkun á bílastæði norðaustan við húsið og færslu á leikvelli.

Lausleg talning leiddi í ljós að nú er 91 bílastæði við verslanakjarnann, 42 norðvestan við húsið, við innganginn að heilsugæslustöðinni og 48 sunnan og suðaustan við húsið.

Mynd úr fylgiskjali með tillögu fasteignafélagsins Heima.

Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Mynd úr fylgiskjali með tillögu fasteignafélagsins Heima.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00