Fara í efni
Sverrir Páll

Auto óskar eftir samtali og samstarfi

Athafnasvæði Auto ehf. að Setbergi á Svalbarðsströnd. Myndin var tekin í maí 2025, en Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hefur margítrekað bókað að ekki hafi verið brugðist við kröfum nefndarinnar um tiltekt og ástand á lóðinni sé óbreytt. Mynd: Þorgeir Baldursson.

Auto ehf. að Setbergi á Svalbarðsströnd hefur óskað eftir samstarfi og samtali við Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra um gerð aðgerðaáætlunar um tiltekt á lóð fyrirtækisins að Setbergi. Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar frá 15. apríl.

Daginn fyrir fund nefndarinnar var staðfest við skoðun á lóð fyrirtækisins að Setbergi að enn hafi ekki verið brugðist við kröfum nefndarinnar um tiltekt á lóðinni. Sama dag og skoðunin fór fram barst nefndinni erindi frá fyrirtækinu þar sem óskað var eftir samstarfi og samtali um gerð aðgerðaáætlunar um tiltekt á lóðinni. 

Heilbrigðisnefndin samþykkti að verða við ósk um fund og hefur falið starfsmönnum Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra að kalla forsvarsmenn fyrirtækisins til fundar hið fyrsta, eins og segir í bókun nefndarinnar. Þar segir einnig að nefndin leggi áherslu á að frekari dráttur á tiltekt sé óásættanlegur og krefst nefndin þess að aðgerðaáætlun miði að því að vinna við tiltekt hefjist án tafar. Nefndin áréttar jafnframt að dagsektir verði áfram lagðar á fyrirtækið þar til fullnægjandi úrbætur hafa verið gerðar og þær staðfestar af hálfu nefndarinnar.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00