Fara í efni
Sverrir Páll

Aron Einar heim í Þór og KR lánar Gyrði

Gyrðir Hrafn Guðbrandsson og Aron Einar Gunnarsson fyrir hádegi áður en Þórsarar hófu æfingu. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, hefur samið við Þór og mun leika með uppeldisfélaginu út keppnistímabilið. Þá hafa Þórsarar fengið Gyrði Hrafn Guðbrandsson að láni frá KR til haustsins.

Aron Einar, sem er 37 ára, hefur aldrei leikið í efstu deild hér heima. Hann lék fyrst með meistaraflokki Þórs fyrir 20 árum, sumarið 2006, þá nýorðinn 17 ára; tók þátt í sex leikjum í næst efstu deild Íslandsmótsins og þremur í bikarkeppninni áður en leiðin lá utan í atvinnumennsku.  Hann var svo með Þór í sex leikjum í næst efstu deild sumarið 2024.

Gyrðir Hrafn er 27 ára og fjölhæfur leikmaður. Hann mun hafa leikið í öllum stöðum á vellinum nema í marki í efstu deild! Hann lék með KR í yngri flokkunum en var síðan á mála hjá Leikni, þar sem hann lék undir stjórn Sigurðar Heiðars Höskuldssonar, núverandi þjálfara Þórs, m.a. tvö ár í efstu deild. Gyrðir lék síðan með FH 2023 og 2024, en snéri heim í KR fyrir sumarið 2025. Hann hefur tekið þátt í sex leikjum með KR í Bestu deildinni í sumar.

Þórsarar, sem eru neðstir í Bestu deildinni, ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur í fyrsta leik eftir komu tvímenninganna því Íslandsmeistarar Víkings, sem eru langefstir í deildinni, koma í heimsókn á Þórsvöllinn á morgun. Næsta viðureign er svo nágrannaslagur KA og Þórs mánudaginn 27. júlí og þriðjudaginn 4. ágúst fá Þórsarar lið Breiðabliks í heimsókn.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00