Fara í efni
Sverrir Páll

Adam Ægir Pálsson með KA út keppnistímabilið

Mynd af vef KA

Knattspyrnudeild KA hefur samið við sóknarmanninn Adam Ægi Pálsson. Félagið tilkynnti það á samfélagsmiðlum í dag og skv. fótbolta.net gildir samningurinn út þetta keppnistímabil. 

Adam Ægir, sem er 28 ára kemur til KA frá Val. Hann „getur bæði leikið sem sóknarmaður og kantmaður vakti verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína með Keflavík sem varð til þess að Víkingur keypti hann til sín. Þaðan gekk hann í raðir Vals fyrir sumarið 2023. Á meðan dvöl hans hjá Val stóð var hann lánaður til ítölsku liðanna Perugia og Novara.“

Adam Ægir var í liði Vals í fyrstu leikjum Íslandsmótsins og gerði þá þrjú mörk. Hann kom hins vegar ekkert við sögu í júní og hefur ekki verið í leikmannahópnum í þessum mánuði.

KA er í 10. sæti Bestu deildarinnar með 13 stig úr 14 leikjum, tveimur stigum fyrir ofan fallsæti. FH er með 11 stig og Þór í neðsta sæti með átta stig.

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00