Fara í efni
Sverrir Páll

Aðflugsljós eru ekki gæluverkefni

Ný aðflugsljós norðan Akureyrarflugvallar verða ekki sett upp fyrr en á árunum 2031 til 2035 skv. samgönguáætlun sem var samþykkt á Alþingi fyrir helgi. Njáll Trausti Friðbertsson lagði fram breytingartillögu þess efnis að framkvæmdinni yrði flýtt og ljósin yrðu sett upp á árunum 2027 og 2028 en hún var felld. Hann segir það mikil vonbrigði.

„Slík framkvæmd mun styrkja starfsemi flugvallarins, ný aðflugsljós skapa möguleika á bættum aðflugslágmörkum þannig að hægt er að lenda í verri veðurskilyrðum. Með því má bæta áreiðanleika vallarins og bætt getu hans til að sinna hlutverki sínu þar á meðal sem varaflugvöllur og alþjóðleg fluggátt fyrir Norður- og Austurland,“ segir Njáll Trausti í grein um málið og akureyri.net birtir í dag.

Í greininni vitnar Njáll Trausti í umsögn Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna við samgönguáætlun, þar sem segir: ,,Á Akureyrarflugvelli eru framkvæmdir við aðflugsljós ekki fyrirhugaðar fyrr en eftir 2030. Þetta er óásættanlegt með tilliti til flugöryggis, sérstaklega í ljósi aukins hlutverks Akureyrarflugvallar í beinu flugi til erlendra áfangastaða“.

Njáll Trausti segir einfaldlega of seint að bíða með aðflugsljós til áranna 2031–2035. „Flugöryggi á ekki að bíða eftir næsta tímabili samgönguáætlunar. Þótt breytingartillögu minni hafi verið hafnað í nýrri samgönguáætlun er málinu ekki lokið af minni hálfu. Áfram þarf að þrýsta á um að aðflugsljós á Akureyrarflugvelli verði færð framar í forgangsröðina, enda hefur vöntun þeirra þegar truflað reglubundið millilandaflug sem nú er stundað.“

  • Grein Njáls Trausta:

Aðflugsljós eru ekki gæluverkefni

Hvenær kemur flugstöðin?

Sverrir Páll skrifar
10. desember 2025 | kl. 17:00

Mendelssohn á Akureyri

Sverrir Páll skrifar
12. júní 2025 | kl. 12:45

Menntun eða próf II

Sverrir Páll skrifar
18. október 2024 | kl. 14:00

Menntun eða próf I

Sverrir Páll skrifar
17. október 2024 | kl. 16:00

Fagurt er til fjalla

Sverrir Páll skrifar
12. maí 2024 | kl. 11:30

Framhaldsskóli fyrir nemendur

Sverrir Páll skrifar
08. mars 2024 | kl. 06:00