Fara í efni
Svavar Alfreð Jónsson

Nota ferðakaleik Nonna við messu

Messað verður í Minjasafnskirkjunni á morgun – á fyrsta sunnudegi í aðventu. Messan hefst klukkan 11.00, prestur verður sr. Aðalsteinn Þorvaldsson en Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri, bregður sér í hlutverk meðhjálpara. Um leik á sögulegt hljóðfæri Minjasafnskirkjunnar sér organistinn Eyþór Ingi Jónsson en félagar úr Kór Akureyrarkirkju sjá um fagran söng.

Í messunni verður gengið til altaris og ástæða er til að vekja athygli á því að við þá athöfn verður notaður ferðakaleikur og patína sem voru í eigu pater Jóns Sveinssonar, Nonna.

  • Kaleikur er drykkjarkerið, bikarinn, sem fólk bergir af þegar gengið er til altaris. Patína er diskurinn undir oblátur, altarisbrauðið.

Jón Sveinsson, Nonni, var fyrstur Íslendinga til að taka vígslu sem kaþólskur prestur eftir siðaskiptin. Kaleikinn notaði hann á ferðum sínum um heiminn og ekki er ólíklegt að Nonni hafi notað gripinn þegar hann var að störfum á vígstöðvum fyrri heimstyrjaldar. 

Kaleikurinn var gefinn Nonnahúsi þegar safnið var stofnað. Líklega var það Haraldur Hannesson, hagfræðingur og skjalavörður, sem gaf safninu gripinn.
 
 
Kaleikur pater Jóns Sveinssonar, Nonna, og altaristaflan í Minjasafnskirkjunni.

Kirkjulegar hvalveiðar og ómetanlegt kvenfélag

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
17. nóvember 2025 | kl. 14:00

Kamarsnið á turninum eins og dómkirkjunni

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
16. nóvember 2025 | kl. 06:00

Fegursta kirkjustæði hérlendis og erlendis

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
15. nóvember 2025 | kl. 14:30

Jólakvöld séra Svavars Alfreðs

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
23. desember 2024 | kl. 12:30

Orðhákar og töfralausnir

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
14. nóvember 2024 | kl. 08:30

Meðhjálparinn

Svavar Alfreð Jónsson skrifar
07. nóvember 2024 | kl. 10:30