„Veturinn hefur verið mjög lærdómsríkur“

Handboltakappinn Arnór Þór Gunnarsson stýrði liði Bergischer HC til sigurs í næst efstu deild í Þýskalandi í vetur ásamt Markus Pütz, á fyrsta heila vetri þeirra sem þjálfarar liðsins. Þeir tóku við seint á síðasta vetri þegar Bergischer var svo gott sem fallið úr efstu deild, og sú varð raunin þrátt fyrir að þeim tækist að gjörbreyta gengi þess. Þeir byggðu síðan upp nýtt lið og unnu 2. deild með yfirburðum.
Deildinni lauk í gær, Bergischer sigraði þá Dessau-Rosslauer 34:28 á útivelli og lauk keppni með 58 stig af 68 mögulegum en næsta lið, GWD Minden, hlaut 47 stig.
Sigur í deildinni var í höfn þegar fjórar umferðir voru enn eftir. „Ég bjóst ekki við því að þetta yrði öruggt svona snemma. Fljótlega eftir að tímabilið byrjaði var ég viss um að við yrðum í toppbaráttunni, við vorum efstir eftir fyrri hluta mótsins en töpuðum reyndar tveimur síðustu leikjunum fyrir landsleikjapásuna í janúar, þegar hlé var gert á deildinni vegna HM. Það var svolítið högg en eftir á að hyggja gerði það okkur gott að,“ sagði Þórsarinn Arnór Þór við Akureyri.net á dögunum.
Markus Pütz er lengst til vinstri, þá Arnór Þór Gunnarsson og til hægri er íþróttastjóri Bergischer HC, Fabian Gutbrod. Myndin var tekin þegar tilkynnt var að félagarnir tveir hefðu verið ráðnir þjálfarar liðsins í fyrra.
Mjög vel undirbúnir
Bergischer hafði eins stigs forskot á næsta lið þegar deildin var hálfnuð og hlé gert vegna HM. „Veturinn hefur verið mjög lærdómsríkur,“ segir Arnór og útskýrir hvernig töp í síðustu tveimur leikjum höfðu góð áhrif á þjálfara og leikmenn liðsins – eftir á að hyggja hefði sigur í báðum leikjum getað orðið til þess að leikmenn og þjálfarar færu of öryggir með sig inn í seinni umferðina.
„Við þjálfararnir fórum í vikufrí, spáðum ekkert í handbolta þann tíma en tókum svo heila viku eftir það þar sem við gerðum ekkert annað en nördast í tölvunni. Markus tók varnarleikinn og ég greindi sóknarleik okkar. Við fórum yfir tölfræði, hvað gekk vel og hvað illa, hvaðan við vorum að fá okkur mörk og svo framvegis. Lágum í tölvunni við að horfa á video og vorum mjög vel undirbúnir þegar við hittum liðið aftur, æfðum eins og skepnur og liðið var ótrúlega vel undirbúið þegar deildin byrjaði aftur.“
Vendipunktur
Leikmenn tóku vel í þær hugmyndir sem þjálfararnir komu með eftir vetrarfríið, segir Arnór, „og við fengum líka hugmyndir frá þeim.“
Bergischer vann Tusem Essen á útivelli í fyrsta leik að loknu fríinu. Tusem hafði ekki tapað á heimavelli fram að þeim leik og staða Arnórs og lærisveina hans var ekki vænleg þegar verkefni dagsins var hálfnað. „Við vorum fimm eða sex mörkum undir í hálfleik en unnum leikinn með einu marki. Það hvernig við náðum að breyta leiknum okkur í hag var vendipunktur á vetrinum og við höfðum mikla yfirburði í mörgum leikjanna eftir þetta.“
Þjálfaraparið Markus Pütz og Arnór Þór Gunnarsson eftir leikinn þar sem Bergischer HC tryggði sér sigur í deildinni.
Í símanum nánast allt fríið
Þjálfari Bergischer var rekinn 14. apríl á síðasta vetri eftir slakt gengi liðsins og þeir Arnór og Markus tóku við. „Þá voru sex leikir eftir, við unnum þrjá, gerðum tvö jafntefli og töpuðum einum; reyndum allt sem við gátum til að bjarga liðinu frá falli, það kom neisti í hópinn en það tókst ekki að halda liðinu uppi.“
Eftir að Bergischer féll úr efstu deild yfirgáfu sjö leikmenn liðið. „Sumarið var galið; ég kom heim til Akureyrar í frí, var þar í fjóra og hálfa viku og var eiginlega í símanum allan tímann!“ segir Arnór Þór og hlær. „Þetta voru endalaus símtöl við leikmenn, maður vissi ekki hvort það myndi ganga að ná í þá sem við vildum en á endanum komu átta nýir leikmenn til okkar.“
Arnór og fjölskylda hans koma í frí til Akureyrar í sumar eins og venjan er og hann segist hlakka gríðarlega til. „Það verður kærkomið að koma norður og safna kröftum. Ég er búinn að lofa að taka mér tveggja vikna frí frá síma og tölvu!“ segir hann og hlær aftur. „Alveg satt! Það er klárt að við höldum öllum okkar leikmönnum og þrír bætast við til að styrkja liðið. Ég þarf því ekki að hugsa um leikmannamál að þessu sinni þannig að nú verður þetta alvöru frí.“
Fabian Gutbrot, núverandi íþróttastjóri Bergischer, og Arnór Þór Gunnarsson léku lengi saman með félaginu. Þeir hættu á sama tíma, vorið 2023, og myndin var tekin þá.
Þjóðverjum finnst þetta skrýtið
Arnór Þór og Markus eru báðir aðalþjálfarar og verkaskipting þeirra er skýr. „Ég sé um sóknarleikinn og hann varnarleikinn en höfum samt að sjálfsögðu báðir áhrif á hvort tveggja. Svona samstarf er algengt í Skandinavíu, í Noregi, Svíþjóð og Danmörku en þekkist ekki hér. Þjóðverjum finnst það mjög skrýtið að tveir þjálfarar hafi jafn mikil völd.“
Arnór hóf ferilinn með Þór og lék síðan með Val í fjögur ár áður en hann hélt til Þýskalands. Hann var á mála hjá TV Bittenfeld í tvö ár en lék síðan með Bergischer í 11 ár, frá 2012 til 2023, þegar hann lagði skóna á hillu vegna þrálátra meiðsla. Arnór var strax ráðinn í þjálfarateymi liðsins en bar þá aðallega ábyrgð á yngri liðum félagsins.
Hann segir mikinn mun á því að vera leikmaður eða þjálfari, eins og nærri má geta. „Við Markus ræddum það einmitt nýlega hvað við höfum lært mikið á stuttu tíma. Við höfum náð okkur í mikla reynslu, til dæmis í því hvernig maður talar við annað fólk. Þótt maður sé enn að vinna við handbolta er þetta allt annað, það eru alls konar hlutir sem hugsa þarf um sem maður er ekki mikið að pæla í sem leikmaður. Það getur ýmislegt komið upp hjá leikmanni og þá þarf þjálfari að geta talað almennilega við hann “
Verkefni að festa liðið í sessi
Arnór kom til Bergischer árið 2012 eins og áður sagði og lék ýmist í efstu deild eða þeirri næst efstu. „Hjá félaginu hefur alltaf verið talað um mikilvægi þess að ná stöðugleika og festa það í sessi í efstu deild. Í fyrra féllum við með frábæran hóp, sem hefði átt að gera miklu betur og fyrsta markmið okkar núna, eftir sigur í annari deild, er að halda okkur í efstu deild næsta vetur.“
Aðspurður segir Arnór töluverðan getumun á deildunum. „Það er reyndar ekki mikill munur á líkamlegum styrk leikmanna en leikskilningur er meiri og handboltinn auðvitað betri í efstu deild. Samt er athyglisvert að Balingen-Weilstetten, sem Oddur Gretarsson lék með og féll í 2. deild í fyrra, komst í úrslitahelgi bikarkeppninnar í vetur – Final four, sló út tvö lið úr efstu deild á leiðinni þangað og vann svo Rhein-Neckar Löwen í leik um bronsið. Balingen Weilstaetten fer samt ekki upp úr 2. deildinni.“
Arnór segir ekki óalgengt að lið sem falli úr efstu deild komist ekki strax upp aftur. Bergischer hafi sem betur tekist að endurheima sætið þar í fyrstu tilraun. „Við Markus höfum oft rætt þetta; það getur verið sjokk að falla og oft tekur það lið tvo, þrjú eða fjögur ár að komst upp aftur. Það getur auðvitað heppnast, eins og hjá okkur núna, en er alls ekki sjálfsagt. Næsta skref er svo að festa sig í sessi í 1. deildinni. Það verður að koma í ljós hvort við náum því strax en það er auðvitað markmiðið til lengri tíma“.
Áður en samtalinu lýkur lýsir Arnór Þór mikilli ánægju með að uppeldisfélagið Þór hafi unnið sér sæti í efstu deild hér heima á nýjan leik. Liðið sigraði sem kunnugt er í næst efstu deild, Grill 66 deildinni. „Ég er hrikalega ánægður með að Þórsararnir séu komnir upp, og að gamlir Þórsarar eins og Oddur [Gretarsson] og Hafþór [Vignisson] hafi komið heim frá útlöndum. Við Þórsarar getum verið mjög stoltir af því að liðið sé komið upp aftur.“