Fara í efni
Smámunasafnið

Arnór kjörinn þjálfari ársins í Danmörku

Arnór Atlason, þjálfari danska handboltaliðsins TTH Holstebro, var kjörinn þjálfari ársins í danska handboltanum. Danska handknattleikssambandið stendur fyrir kjöri á þjálfara ársins í úrvalsdeild karla og kvenna og niðurstaðan var kynnt í gær. Það eru þjálfarar í deildunum sem kjósa ásamt landsliðsþjálfurum.

Kjörið í karladeildinni var spennandi; KA-maðurinn Arnór hlaut 18,5% atkvæði en þrír fengu einu atkvæði minna, Jacob Vinholt (Grindsted GIF Håndbold), Mathias Albrektsen (Skive fH) og Niels Agesen (Mors-Thy Håndbold). Að þessu sinni kusu 27 þeirra 32 sem hafa atkvæðisrétt.

Arnór hóf handboltaferilinn með KA eins og margir muna en lék síðan í Þýskalandi, Danmörku og Frakklandi við frábæran orðstír. Hann er einn silfurdrengjanna frá Peking þar sem landsliðið lenti í öðru sæti á Ólympíuleikunum árið 2008. Arnór lagði keppnisskóna á hilluna 2018 eftir tvö ár hjá Aalborg Håndbold og var þá ráðinn aðstoðarþjálfari liðsins. Arnór sinnti því starfi frá 2018 til 2023 og varð liðið þrisvar sinnum danskur meistari á þeim auk þess að leika til úrslita í Meistaradeildinni og hann þjálfaði einnig U19 og U21 árs landslið Danmerkur. Arnór var ráðinn aðalþjálfari TTH Holstebro 2023 og er einnig aðstoðar landsliðsþjálfari Íslands.

TTH Holstebro komst í undanúrslit um danska meistaratitilinn í vor en tapaði fyrir liði Álaborgar – Aalborg Håndbold, gamla liðinu hans Arnórs, og nú stendur yfir einvígi TTH Holstebro og GOG um þriðja sætið.

Norðmaðurinn Ole Gustav Gjekstad, sem stýrir Odense Håndbold, sigraði með yfirburðum í kjöri á þjálfara ársins í kvennadeildinni. Fékk 44,8% atkvæða. Gjekstad hefur verið við stjórnvölinn hjá liði frá Odense sem hefur sett mark sitt á bæði í kvennadeildinni og ekki síst í Meistaradeildinni, þar sem liðið lék alla leið í úrslitaleikinn.

Þess má geta að Gjekstad lætur nú af störfum hjá Odense. Hann tók við norska kvennalandsliðinu af Þóri Hergeirssyni um síðustu áramót.

Fréttin á heimasíðu danska handknattleikssambandsins.