Fjölbreytt fortíð í nýju ljósi á Minjasafninu
Fortíðin er jafnan í forgrunni á Minjasafninu á Akureyri eins og gefur að skilja en segja má að hún verði í nýju ljósi að ákveðnu leyti á næstunni; þrjá fimmtudaga í febrúar og aðra þrjá í mars verður viðburðaröð um sagnfræði þar sem boðið verður upp á fjölbreytta fyrirlestra um ljósmyndir, lykt, sjúkdóma, persónur og átök svo nokkuð sé nefnt.
Dr. Guðni Th. Jóhannesson, prófessor við Háskóla Íslands og fv. forseti Íslands, heldur opnunarfyrirlesturinn í þessari viku, fimmtudaginn 5. febrúar, og fjallar um Othello-slaginn á Akureyri í maí árið 1973.
- Spurt er í kynningu fyrirlesturs Guðna: Hvað gerðist á togarabryggjunni 14. maí 1973 þar sem Othello lá við bryggju? Hvaða lærdóm má draga af því og öðrum þáttum í þorskastríðssögu Íslendinga?
„Fortíðin er fjölbreytt“
„Það hefur staðið til í nokkurn tíma að halda fyrirlestra sem þessa á safninu. Ég leitaði til Akureyrarakademíunnar um samstarf sem fengu Sagnfræðingafélag Íslands í lið með okkur. Saman höfum við fengið til liðs við okkur blöndu af reynslumiklum sagnfræðingum og nýútskrifuðum en einnig einstaklinga sem hafa stundað áhugaverðar sagnfræðirannsóknir sem nýverið hafa komið út eða von er á,“ segir Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri Minjasafnsins.
„Fortíðin er fjölbreytt“, segir Haraldur „Sagan birtist okkur til dæmis í ljósmyndum blaðaljósmyndarans Gunnars V. Andréssonar sem ásamt Sigmundi Erni Rúnarssyni gáfu út frábæra bók, Spegill þjóðar, en sýning á myndum Gunnars verður opnuð 19. febrúar næstkomandi. Að sama skapi verður litið á myndskreytingar í handritum, og við kynnumst ævi 19. aldar konunnar Sigríðar Pálsdóttur sem dr. Erla Hulda Halldórsdóttir, prófessor í sagnfræði, skrifaði um í tímamótaverki, en konur þessa tíma voru meira baksviðs.“
Ekki bara til skrauts
„Kannski hefur núverandi ástand í heimsmálunum óbeint áhrif á að núna förum við af stað. Fortíðin er ekki aðeins til skrauts heldur getur hún mögulega leiðbeint okkur,“ segir Haraldur Þór við akureyri.net.
„Það er eitt af því sem dr. Guðni Th. Jóhannesson prófessor í sagnfræði og fv. forseti Íslands kemur inn á í erindi sýnu, Othello-slagurinn á Akureyri og aðrar þorskastríðssögur sem læra má af ef vilji er fyrir hendi. Þá verður einnig áhugavert að heyra um mögulegar tengingar Akureyrarveikinnar og ME sjúkdómsins. Hver veit nema að lyktarheimur Íslendinga gæti varpað ljósi á líðan landsmanna í fortíðinni en um það verður fjallað í einum fyrirlestrinum.“
- Fyrirlestrarnir verða í Minjasafninu á Akureyri, þeir hefjast alilr kl. 17.00 og aðgangur er ókeypis.
Febrúar
- 5. febrúar – Othello-slagurinn á Akureyri og aðrar þorskastríðssögur sem læra má af ef vilji er fyrir hendi; dr. Guðni Th. Jóhannesson.
- 12. febrúar – Akureyrarveikin og ME-sjúkdómurinn; Óskar Þór Halldórsson og dr. Friðbjörn Sigurðsson
- 19. febrúar – Spegill þjóðar -fréttamyndir í 50 ár og sagan á bakvið þær; Gunnar V. Andrésson og Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Mars
- 5. mars – Ilmur, angan og fnykur: Ýmis lykt í íslenskum heimildum frá 19. og 20. öld; Ragnhildur Björt Björnsdóttir, sagnfræðingur.
- 12. mars – Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur (1809–1871) og brotakenndar heimildir; dr. Erla Hulda Halldórsdóttir.
- 19. mars – Skreytingar í handritum síðari alda og þáttur af einum norðlenskum listaskrifara; Kjartan Ísleifsson, sagnfræðingur