Skautafélag Akureyrar
Sannfærandi sigur KA-manna á Víkingum
15.02.2026 kl. 23:00
KA-menn fagna glæsimarki Hallgríms Mars í dag. Frá vinstri: Jeppe Pedersen, Hallgrímur, Valdimar Logi Sævarsson, Guðjón Ernir Hrafnkelsson (30) og Hans Viktor Guðmundsson. Lengst til hægri er Sigurður Hjörtur Þrastarson dómari. Mynd: Ármann Hinrik
Knattspyrnulið KA sigraði Íslandsmeistara Víkings 2:0 í Boganum í dag í Lengjubikarkeppninni. Sigurinn var sanngjarn, KA-menn léku prýðilega og Víkingar lék reyndar einnig áætlega saman úti á vellinum en ógnuðu nær ekkert fyrr en í blálokin þegar Steinþór Már Auðunsson markvörður KA þurfti tvisvar að taka á honum stóra sínum.
Liðin eru í 3. riðli A-deildar mótsins og var þetta þriðji leikur beggja; Víkingu hafði unnið Grindavík og gert jafntefli við Njarðvík en KA hafði tapað tveimur fyrstu leikjunum, 2:0 heima fyrir KR og 4:3 fyrir ÍR í Reykjavík.
- Hallgrímur Mar Steingrímsson gerði fyrra mark KA undir lok fyrri hálfleiks. Liðið fékk aukaspyrnu nokkrum metrum utan vítateigs, gestirnir röðuðu upp þéttum varnarvegg en það skipti engu máli; Hallgrímur sendi boltann yfir veginn og efst í vinstra horn marksins. Aron Snær Friðriksson var ekki nálægt því að verja. Myndir Ármanns Hinriks af marki Hallgríms eru hér að neðan.

- Þegar 15 mín. voru liðnar af seinni hálfleik var Víkingurinn Stígur Diljan Þórðarson rekinn af velli. Víkingar áttu aukaspyrnu, fjölmennt var í vítateig KA og Daninn Jeppe Pedersen fékk það verkefni að gæta Stígs. Víkingurinn var eitthvað ósáttur, traðkaði ofan á fæti þess danska, og reyndist það síðasta framlag hans að þessu sinni. Haukfránn dómari leiksins, Sigurður Hjörtur Þráinsson, sá hvað gerðist of teygði sig umsviflaust eftir rauða spjaldinu.
- Ekki liðu nema þrjár mínútur frá því rauða spjaldið fór á loft þar til Birgir Baldvinsson gerði seinna mark KA. Eftir hornspyrnu mistókst markverði Víkings að góma boltann sem féll fyrir fætur KA-mannsins í markteignum. Birgir, sem hingað til hefur leikið sem vinstri bakvörður en var framar á vellinum í dag, var fljótur að átta sig og þrumaði boltanum í markið.
- KA-mennirnir Hallgrímur Mar og Hans Viktor Guðmundsson héldu upp á það með afbragðs frammistöðu að hafa verið valdir í landsliðshópinn á dögunum. Hallgrímur lék við hvern sinn fingur eins og svo oft áður og Hans Viktor var eins og klettur í vörninni; hann lét framherjann Nikolaj Hansen ekki komst upp með neinn moðreyk.