Öruggt hjá Þór gegn Gróttu – Þór/KA tapaði
Þór sigraði Gróttu mjög örugglega 3:1 í Boganum í gærkvöldi í 2. riðli A-deildar Lengjubikarkeppni KSÍ. Þór/KA tapaði 3:1 fyrir Þrótti í sömu keppni í Reykjavík í gær og KA-menn taka á móti Íslandsmeisturum Víkings í Boganum í dag.
Þór og Grótta mættust í Boganum. Þórsarar komust í 3:0, en gestirnir minnkuðu muninn í blálokin og lokatölur urðu 3:1. Þór er því með fjögur stig að loknum tveimur leikjum, gerði jafntefli við ÍA á Skaganum um síðustu helgi.
- Atli Sigurjónsson kom Þór í 1:0 strax á 9. mínútu, skoraði beint úr horni frá hægri.
- Atli gekk til lið við Þór á ný í vetur og þetta var fyrsta mark hans fyrir uppeldisfélagið í átta og hálft ár; hann lék um tíma með Þór sumarið 2017 sem lánsmaður frá KR og gerði eitt mark. Það var einnig gegn Gróttu, í 3:1 sigri á Seltirningum á Nesinu 26. ágúst.
- Þegar Atli skoraði á Nesinu voru liðin sjö ár frá síðasta deildarmarki hans fyrir Þór; hann gerði fyrsta markið þegar Þór vann KA 3:0 í næst efstu deild Íslandsmótsins 2. september 2010. Eftir sumarið 2011 fór Atli síðan til KR.

Boltinn á leið í mark Gróttu eftir hornspyrnu Atla Sigurjónssonar. Boltinn sveif í fallegum boga í fjærhornið án þess að Guðmundur Rafn Ingason fengi við ráðið.
- Ibrahima Balde kom Þór í 2:0 seint í fyrri hálfleik og Ágúst Eðvald Hlynsson gerði þriðja markið úr víti á 71. mín.
- Þórsarar höfðu fengið víti fyrr í leiknum en Christian „Greko“ Jakobsen skaut þá í þverslá. Vítið var dæmt eftir að Hrannar Ingi Magnússon varði boltann með hendi á marklínu og var rekinn af velli.
- Grímur Ingi Jakobsson gerði mark Gróttu á lokamínútunni.
Einar Tómas Sveinbjarnarson, leikmaður Gróttu, slasaðist eftir að hann tæklaði Þórsarann Balde þegar um hálftími var liðinn af leiknum. Hann fékk nokkurra sentimetra skurð við hnéð eftir að takkar Þórsarans lentu í honum. - Hlé var gert á leiknum í drjúga stund á meðan beðið var eftir sjúkrabíl, en Einar bar sig vel í samtali við fótbolta.net – sjá hér – eftir saumaskap á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
- KA tekur á móti Íslandsmeisturum Víkings í Boganum í dag, í Lengjubikarkeppninni, og hefst leikurinn kl. 16.30. Liðin eru í 3. riðli A-deildar.

Bríet Fjóla Bjarnadóttir í bikarleik með Þór/KA gegn KR í fyrrasumar. Hún hefur skorað í báðum leikjum liðsins í Lengjubikarnum í vetur. Mynd: Ármann Hinrik.
Þór/KA tapaði fyrir Þrótti
Þór/KA tapaði öðrum leik sínum í A-deild Lengjubikars kvenna í knattspyrnu þegar liðið sótti Þrótt heim í Laugardalinn í gær. Lokatölur 3-1, Þrótti í vil.
Þrátt fyrir góðan fyrri hálfleik hjá Þór/KA voru það gestgjafarnir sem leiddu 1-0 í leikhléi. Fyrri hálfleikurinn var að mörgu leyti ágætur hjá Þór/KA, leikurinn í járnum og liðið jafnvel með yfirhöndina á góðum köflum í hálfleiknum. Þegar fremst á völlinn var komið létu færin hins vegar á sér standa og mörkin líka, en Þróttarar svöruðu með marki á 33. mínútu.
Eins og í fyrsta leik liðsins í Lengjubikarnum var upphaf seinni hálfleiksins ekki gott og þegar nokkrar mínútur voru liðnar komu tvö mörk Þróttar með stuttu millibili, staðan orðin 3-0 og möguleikar á stigi eða stigum hjá Þór/KA orðnir þverrandi. Þegar leið á seinni hálfleikinn náðu þær þó aftur vopnum sínum og spiluðu ágætlega síðustu 20 mínúturnar. Það skilaði þó ekki nema einu marki þegar Bríet Fjóla Bjarnadóttir skoraði með góðu skoti rétt innan vítateigslínunnar eftir sendingu frá Anítu Ingvarsdóttur. Þess má geta að Aníta er fædd 2009 og Bríet Fjóla 2010.
Þór/KA hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í riðli 1 í A-deild Lengjubikarsins og möguleikar liðsins á því að komast í undanúrslit keppninnar því orðnir litlir nema með hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum. Enn er þó fáum leikjum lokið í riðlinum.