Fara í efni
Skautafélag Akureyrar

Barátta, spenna og stemning en mörkin vantaði

Einar Freyr Halldórsson, hinn stórskemmtilegi 17 ára miðjumaður Þórsara, með boltann í kvöld. Hans Viktor Guðmundsson fyrirliði KA er á eftir honum. Mynd: Ármann Hinrik

Fallbaráttan er áfram í algleymingi á Akureyri eftir markalaust jafntefli KA og Þórs í Bestu deild karla í fótbolta, að viðstöddum tvö þúsund áhorfendum á nýja KA-vellinum í kvöld.

KA fór upp fyrir Stjörnuna og í níunda sætið með jafnteflinu en bæði liðin eru með 15 stig og eru fyrir ofan FH, sem er með 13 stig og Þór sem vermir áfram botnsætið en nú með 12 stig. Það eru því spennuþrungnar vikur framundan hjá Akureyrarliðunum.

Í heildina voru þetta kannski sanngjörn úrslit eftir mikla baráttu þar sem ekkert var gefið eftir, svipað og í fyrri leik liðanna á Þórsvellinum í vor, en KA-menn naga sig eflaust í handarbökin yfir því að hafa ekki nýtt færi og góðar stöður snemma í leiknum og undir lok fyrri hálfleiks. Ásamt því að hafa fengið upplagt tækifæri til að hirða stigin þrjú í uppbótartímanum.

En Þórsarar komu vel inn í leikinn í seinni hálfleiknum og voru þar með yfirhöndina á köflum án þess að skapa sér nægilega góð marktækifæri.

Adam Ægir Pálsson á fleygiferð með boltann, Vilhelm Ottó Biering Ottósson í humátt á eftir. Mynd: Ármann Hinrik

Aron fór til Spánar!

Aron Einar Gunnarsson var farinn til Spánar til móts við sína nýju félaga í Qatar SC um helgina og var staddur í Barcelona seinni part mánudagsins. Ljóst var að ekki tóku allir KA-menn fréttir af brottför hans trúanlegar og voru á því að um gabb væri að ræða. Hann myndi mæta til leiks. En þegar leikskýrslan var birt klukkutíma fyrir leik var loks hægt að sannfæra alla um að leikurinn gegn Víkingi hefði verið eini leikur Arons með Þór á þessu tímabili.

Stemning löngu fyrir leik

Þórsarar áttu 400 miða á leikinn, fyrir aftan syðra markið, og margir þeirra mættu tímanlega, létu vel til sín heyra og stjórnuðu stemningunni á vellinum á meðan liðin hituðu upp meira en hálftíma fyrir leik. Stuðningsmenn KA voru mun seinni til að koma sér fyrir við völlinn. „Þetta er enginn heimavöllur,” var aðal slagorðið hjá hressum Þórsurum.

En rúmum 20 mínútum fyrir leik var hliðstæður hópur KA-stuðningsmanna búinn að koma sér fyrir á pöllunum á vesturhliðinni og farnir að kveðast á við andstæðingana. Allt eins og það á að vera og ánægjulegt að verða vitni að stemningu sem þessari á leikjum í Bestu deildinni. Hún þarf á þessum tveimur liðum og rígnum þeirra á milli að halda.

Guðjón Ernir Hrafnkelsson hægri bakvörður KA og Fannar Daði Malmquist vinstri útherji Þórs. Mynd: Ármann Hinrik

Kári Gautason og Jakob Héðinn Róbertsson komu inn í byrjunarlið KA í staðinn fyrir Birgi Baldvinsson og Jeppe Pedersen sem voru í leikbanni. Að öðru leyti var þetta sama lið og Hallgrímur Jónasson tefldi fram gegn ÍBV í síðasta leik.

Nýi Spánverjinn, Victor Bertomeu, kom beint inn í byrjunarlið Þórs og einnig Birgir Ómar Hlynsson og Sigfús Fannar Gunnarsson, en þeir komu í staðinn fyrir Bjarna Guðjón Brynólfsson og Ágúst Eðvald Hlynsson sem tóku út leikbann og Aron Einar.

Mark virtist liggja í loftinu

KA byrjaði af miklum krafti og skapaði sér tvö færi á fyrstu 90 sekúndum leiksins og það þriðja á fjórðu mínútu. KA-mark virtist liggja í loftinu á þessum upphafsmínútum.

„Hver er í markinu,” sungu Þórsararnir fyrir aftan mark KA en þar stóð hinn ungi Ívar Arnbro Þórhallsson eins og í síðasta leik þeirra gulu og bláu. Aðeins þriðji leikurinn hans í efstu deild en Ívar sýndi að hann er tilbúinn í slaginn í þessari deild, í forföllum Steinþórs Más Auðunssonar.

Þórður Þ. Þórðarson dómari hafði strax í mörg horn að líta og KA-menn voru ekki hressir á 13. mínútu þegar hann stöðvaði leikinn vegna brots þegar þeir voru í framhaldinu á leið í gegnum Þórsvörnina. Fyrsta spjaldið fór þá á loft á Þórsarann Birgi Ómar Hlynsson. Útlit fyrir að það væri ekki það síðasta.

Mynd: Ármann Hinrik 

Blautur völlurinn erfiður fyrir ÞÞÞ

Þórður var annars í vandræðum á rennblautum vellinum. Þar hafði sennilega verið notað full mikið vatn fyrir leik og hann missti fótanna tvisvar á upphafsmínútum leiksins.

Kári Gautason vinstri bakvörður KA lét reyna á Aron Birki Stefánsson markvörð og fyrirliða Þórs á 19. mínútu með hörkuskoti af 25 metra færi sem Aron varði með því að slá boltann út fyrir hliðarlínu.

KA-menn leituðu mikið að Adam Ægi Pálssyni á hægri kantinum frá byrjun og hann kom með nokkrar góðar fyrirgjafir snemma leiks, reyndar líka nokkrar sem heppnuðust ekki eins vel. Adam krækti sér svo í annað gula spjald leiksins fyrir brot á 23 mínútu.

Þriðja gula spjaldið fór á loft á 26. mínútu þegar Fannar Daði Malmquist Gíslason sóknarmaður Þórs reyndi að fiska aukaspyrnu við vítateigslínu KA. Þórður dómari sá við honum.

KA ógnaði stöðugt hægra megin og á 37. mínútu átti Hallgrímur Mar Steingrímsson magnaða fyrirgjöf þaðan en Aron Birkir varði vel frá Jakobi Héðni Róbertssyni af stuttu færi.

Aron Birkir markvörður Þórs handsamar knöttinn. Markús Máni Pétursson við hans. Mynd: Ármann Hinrik

Þrumufleygur í þverslána

Jakob Snær Árnason átti tveimur mínútum síðar mikinn þrumufleyg af 20 metra færi, í þverslá Þórsmarksins og yfir. KA-menn voru mun beinskeyttari í fyrri hálfleik og betri í því að binda endi á sínar sóknir.

Kristófer Kristjánsson vinstri bakvörður Þórs varð að hætta keppni á 41. mínútu og Vilhelm Ottó Biering Ottósson kom í hans stað.

Sigfús Fannar Gunnarsson varð fyrstur Þórsara til að láta reyna virkilega á Ívar í marki KA á 44. mínútu, með firnaföstu skoti af 25 metra færi. Ívar hélt ekki boltanum en félagar hans í vörninni komu honum í burtu.

Danijel Dejan Djuric átti síðustu marktilraun fyrri hálfleiks en skaut vel yfir Þórsmarkið, rétt utan vítateigs. Staðan var því 0-0 í hálfleik.

Þórsarar þurftu að gera aðra breytingu í hálfleik. Ragnar Óli Ragnarsson varnarmaðurinn hávaxni var tæpur fyrir leikinn og Ásbjörn Líndal Arnarsson kom í hans stað.

Frískleg byrjun Þórsara

Spánverjinn Victor Bertomeu komst ekki í nein færi í fyrri hálfleik í sínum fyrsta leik á Íslandi en hóf þann síðari á markskoti sem Ívar varði örugglega. Ívar var eflaust feginn að vera ekki lengur með stuðningsmenn Þórs í bakinu í síðari hálfleiknum!

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs fékk fyrsta gula spjald seinni hálfleiks eftir þrjár mínútur þegar hann lýsti yfir óánægju með eina af ákvörðunum Þórðar dómara.

Þórsarar hófu seinni hálfleikinn mun betur, áttu margar góðar sóknir og Fannar Daði komst í ágætt færi eftir nákvæmlega tíu mínútur en skaut næstum því út á götu.

Hallgrímur Mar átti fyrsta skot KA í seinni hálfleik skömmu síðar en beint á Aron Birki.

Jakob Snær Árnason miðjumaður KA fékk gula spjaldið á 68. mínútu og Þórsarar aukaspyrnu á vænlegum stað vinstra megin. KA-vörnin sá við henni.

Þórsarinn Ásbjörn Líndal Arnarsson og KA-maðurinn Adam Ægir Pálsson stíga óhefðbundinn dans. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Vildu fá hann aftur inn á

Danijel Dejan Djuric var skipt af velli hjá KA á 70. mínútu. Þórsarar sungu allan tímann um að hann skoraði aldrei, heimtuðu síðan að hann kæmi inn á aftur, en KA-menn voru ánægðir með hans framlag og klöppuðu honum lof í lófa. Enda vantaði nokkrum sinnum aðeins herslumun að hann galopnaði vörn Þórsara. Danijel er greinilega að finna sig í KA-búningnum eftir erfiða fyrstu mánuðina á tímabilinu.

Atli Sigurjónsson sneri aftur á völlinn með Þór eftir meiðsli aftan í læri og kom inn á fyrir spænska framherjann. Þórsarar höfðu saknað Atla sárt í undanförnum leikjum.

Valdimar Logi Sævarsson kom inn fyrir Danijel og átti góðan sprett á 77. mínútu sem endaði með skoti í hliðarnetið úr þröngu færi.

Verður ekki lengi í deildinni

Einar Freyr Halldórsson, sá stórskemmtilegi miðjumaður Þórsara, sendi hættulega aukaspyrnu inn í vítateig KA frá vinstri kantinum en Gyrðir Hrafn Guðbrandsson náði ekki að stýra boltanum á markið og skallaði yfir. Einar er gríðarlegt efni og verður eflaust ekki lengi í Bestu deildinni.

Atli freistaði þess að skjóta strax og hann fékk boltann óvænt inn fyrir vörn KA en Ívar var kominn á sinn stað í markinu og varði auðveldlega. Atli hefði mögulega getað gert betur úr þessu því KA-vörnin var algjörlega komin úr jafnvægi.

Yann Affi miðvörður Þórs fékk gula spjaldið þegar hann stöðvaði Jakob Héðin hressilega í efnilegri sókn KA og virtist á góðri leið með að kjafta sig yfir í rautt eftir að hafa rætt málin af krafti við Þórð dómara.

Valdimar Logi Sævarsson (44) fékk kjörið tækifæri til að tryggja KA sigur í uppbótartíma en Þórsarinn Yann Emmanuel Affi komst fyrir skotið og Aron Birkir markvörður náði boltanum auðveldlega.  Myndir: Skapti Hallgrímsson

Valdimar gat tryggt KA sigur

Jakob Snær komst í álitlega stöðu á 90. mínútu þegar hann brunaði upp hægri kantinn en skaut vel yfir Þórsmarkið.

Valdimar Logi tók svipað hlaup upp hægra megin og kom sér í enn betri stöðu en skaut að lokum í varnarmann Þórs. Þarna voru tveir möguleikar hjá KA til að hirða öll þrjú stigin, sérstaklega hjá Valdimar sem var í einu af bestu færum leiksins.

En eftir fjögurra mínútna uppbótartíma flautaði ÞÞÞ til leiksloka og áhorfendurnir tvö þúsund, eða 1.928 samkvæmt uppgefnum tölum, urðu eins og leikmennirnir að sætta sig við markalausan leik og eitt stig í hvorn bæjarhluta. Þetta varð ekki sama dramatíkin og á lokamínútunum í fyrri leiknum í vor. Þetta var ekki besti fótboltaleikur ársins, fjarri því, en baráttuna, spennuna og stemninguna vantaði ekki.

Mætast liðin í þriðja sinn?

Það kemur síðan í ljós eftir nokkrar vikur hvort liðin mætast í þriðja skipti í haust, eftir að deildinni verður skipt í efri og neðri hluta, en úrslit kvöldsins hafa væntanlega aukið líkurnar á að af þeim leik verði.

KA: Ívar Arnbro Þórhallsson - Guðjón Ernir Hrafnkelsson, Hans Viktor Guðmundsson, Markús Máni Pétursson, Kári Gautason (Breki Hólm Baldursson 64.) - Jakob Snær Árnason, Hallgrímur Mar Steingrímsson, André Römer (Mikael Breki Þórðarson 88.) - Adam Ægir Pálsson (Samuel Karl Kroon 88.), Jakob Héðinn Róbertsson, Danijel Dejan Djuric (Valdimar Logi Sævarsson 70.)

Þór: Aron Birkir Stefánsson - Birgir Ómar Hlynsson (Sverrir Páll Ingason 80.), Ragnar Óli Ragnarsson (Ásbjörn Líndal Arnarsson 46.), Yann Emmanuel Affi, Kristófer Kristjánsson (Vilhelm Ottó Biering Ottósson 41.) - Gyrðir Hrafn Guðbrandsson, Einar Freyr Halldórsson, Christian Jakobsen (Þorri Ingólfsson 70.) - Sigfús Fannar Gunnarsson, Víctor Bertomeu (Atli Sigurjónsson 74.), Fannar Daði Malmquist Gíslason.

Leikskýrslan á vef KSÍ

Staðan í deildinni

 

  • Umfjöllun um leikinn fyrr í kvöld:

Það er mikilvægt að fara ekki á taugum

Bjartir tímar framundan hjá okkur

„Frekar svekktur með þessi úrslit“

Við ætluðum okkur sigur en stigið er gott