Fara í efni
Skautafélag Akureyrar

„Frekar svekktur með þessi úrslit“

Miðverðir KA, Markús Máni Pétursson og Hans Viktor Guðmundsson, fyrir miðri mynd, elta Þorra Ingólfsson, Víkinginn unga sem Þórsarar fengu að láni á dögunum og lék síðustu 25 mínúturnar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Hans Viktor Guðmundsson fyrirliði knattspyrnuliðs KA var ekki sáttur í leikslok eftir markalausa jafnteflið gegn Þór í viðureign Akureyrarliðanna í Bestu deild karla frammi fyrir tvö þúsund áhorfendum á nýja KA-vellinum í kvöld.

KA lyfti sér upp fyrir Stjörnuna með þessum úrslitum og er nú í níunda sæti deildarinnar eftir 16 umferðir með 15 stig, eins og Garðabæjarliðið. FH með 13 stig og Þór með 12 sitja í fallsætunum tveimur þannig að áfram skilja þrjú stig að Akureyrarliðin tvö.

„Já, ég er frekar svekktur með þessi úrslit. Mér fannst við vera mun betri aðilinn í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Við sköpuðum okkur mörg góð færi og margar góðar stöður og áttum að klára þetta þar. En okkur tókst ekki að setja boltann í netið,“ sagði Hans Viktor við akureyri.net eftir leikinn.

KA var mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en Þór náði yfirhöndinni á köflum í þeim síðari.

„Já, þetta var meira bras hjá okkur í seinni hálfleik. Eftir að hafa verið algjörlega með yfirhöndina í þeim fyrri jafnaðist þetta út en þá var samt ekki svakalega mikið að frétta. Samt fengum við þrjú góð færi og nýtingin hefði bara þurft að vera betri í kvöld.

Baráttan var til staðar hjá báðum liðum eins og við var að búast og við verðum að taka þessu eina stigi þótt það sé svekkjandi,“ sagði Hans Viktor Guðmundsson.