Fara í efni
Sigmundur Ernir

Skúringar

AKUREYRI ÆSKU MINNAR – 81

Guðrún amma skúraði á kvöldin, og raunar allt hvað af tók. En það var ekki um annað að ræða til að ná endum saman á hennar tíð. Og þannig hugsuðu akureyskar konur í æsku minni, því ef þær tækju ekki að sér aukastörfin sem voru í boði um allan bæ, væru þær ekki að standa sína plikt.

Svo það var ekki nóg að sinna heimilinu og vinna á verksmiðjunum lengst af dags, heldur varð að fara þaðan beinustu leið um bæinn, með kúst sinn og fötu, og skrúbba gólfin á helstu skrifstofum bæjarins, en hvítþvo líka kaffiblettina af skrifborðunum, áður en strokið var af stólunum og sessurnar dustaðar, og loftað út á götu.

Lengi vel öfundaði ég Sigrúnu systur sem fékk að fylgja ömmu gömlu í þessar hreingerningar um allan bæ. Hún var auðvitað fjórum árum eldri en ég, eins og löngum síðar, og þótti fyrir vikið hafa aldur til að aðstoða hana við ræstingarnar.

Þess þá heldur að það hafi verið mér opinberun í þau fáu skipti sem ég fékk að taka þátt í öllu heila fægiverkinu. En ég átti þá til að standa til hlés, svo sóparnir myndu ekki kippa undan mér fótunum, jafn hratt og farið var um gólfdúkana.

En leiðin lá sumsé úr fataverksmiðjunni Heklu á Gleráreyrum, þar sem amma stimplaði sig út úr dagvinnunni, og haldið var inn eftir Strandgötunni, uns dyrnar voru opnaðar á Ferðaskrifstofunni Sögu. Og hún fægð. Svo á næstu grösum var Rakarastofa Jóns Eðvarðs. Sú pússuð. En litlu fjær, niðri í botni Gilsins, var loks komið að sjálfri Tollafgreiðslunni, háheilagri. Allt bónað.

Og meðan á öllu þessi gekk, fór Sigrún systir á milli skrifborðanna og tæmdi öskubakkana, sneisafulla, og losaði í léreftspoka, í einum og sama dauninum.

Svo var haldið heim til að elda fyrir mannskapinn. Eins og hitt væri ekki nóg.

Sigmundur Ernir er fæddur á Akureyri 1961. Pistlar hans um æskuárin í heimabænum á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar birtast alla mánudaga á Akureyri.net.

  • Í NÆSTU VIKU: NEFTÓBAK

Neftóbak

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
02. júní 2025 | kl. 11:30

Chelsea

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
19. maí 2025 | kl. 11:30

Export

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
12. maí 2025 | kl. 11:30

Serie A

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
05. maí 2025 | kl. 11:30

Bravo

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
28. apríl 2025 | kl. 11:30

Saumaherbergi

Sigmundur Ernir Rúnarsson skrifar
21. apríl 2025 | kl. 11:30